stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ég flyt tillögu mína til þingsályktunar um stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi. Tillagan hljóðar svo:
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að taka til frumathugunar stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi. Litið verði við þessa frumathugun til starfsemi Equinor í Noregi, fyrrum Statoil.
Tillaga þessi var áður lögð fram á 153. löggjafarþingi, 430. mál, og er nú endurflutt nær óbreytt. Til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda erum við tilneydd til að þurfa fleiri græna orkugjafa. Framleiðsla rafeldsneytis, sem vetnis eða annars rafeldsneytis í formi ammóníaks, metanóls eða metans, er grænt tækifæri sem bíður þess að verða nýtt. Framleiðsla rafeldsneytis á Íslandi er talin vera ábatavæn og mikilvægt framlag í baráttu okkar gegn loftslagshlýnun. Eftirspurn eftir grænu vetni sem framleitt hefur verið með rafgreiningu vatns og endurnýjanlegri orku, samhliða markmiðum í loftslagsmálum, mun einungis fara vaxandi á komandi árum.
Aðgengi að rafeldsneyti þarf að vera til staðar og til að framleiðsla geti orðið samkeppnishæf til framtíðar þarf hún að vera á hagstæðu verði. Mikilvægi þess að Ísland geti orðið sjálfbært þegar kemur að öflun rafeldsneytis er ótvírætt eins og núverandi ástand heimsmála sýnir svo rækilega. Sjálfbærni í orkuöflun er þjóðaröryggismál, fyrir utan þá þjóðhagslegu hagsmuni sem af því hljótast að framleiða innlenda orkugjafa til notkunar í orkuskiptum Íslendinga. Framtíðartækifærin eru því mikil þegar kemur að framleiðslu á rafeldsneyti og þetta styður við markmið okkar um orkusjálfstæði Íslands.
Við höfum ákveðin markmið í átt að kolefnishlutleysi og þó að þau séu af ýmsum talin afar háleit ætlum við okkur að standast skuldbindingar okkar í loftslagsmálum. Ásamt því að framleiða endurnýtanlega orkugjafa til að fullnægja þörfum innan lands liggja einnig gríðarleg tækifæri í að hefja útflutning á rafeldsneyti. Framleiðsla á rafeldsneyti er kostnaðarsöm aðgerð en þótt framleiðsla á rafeldsneyti og sala sé í dag hlutfallslega lítil er áhugi fjárfesta mikill og ákveðin tækifæri felast í því að fjármagna framleiðslu þegar markaðir eru orðnir tryggir. Á heimsvísu er gert ráð fyrir að kostnaðarliðir fari lækkandi á næstu árum. Eitt af tækifærum Íslands við framleiðslu rafeldsneytis er að nýta mögulega árstíðabundna umframorku og hámarka arðsemi.
Með stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu sem yrði í meirihlutaeigu ríkisins er tryggt að stærstur hluti ábatans af framleiðslunni renni til þjóðarinnar. Ef horft er til Noregs og stofnun ríkisolíufélagsins Statoil árið 1972 ætti öllum að vera ljós ábati norska ríkisins af þeirri ákvörðun. Norski olíusjóðurinn er einn sá stærsti í heiminum í dag og hefur gjörbreytt stöðu Norðmanna til uppbyggingar innviða og þjónustu við íbúa um allan Noreg. Ísland er í kjörstöðu til að nýta auðlindir sínar til framleiðslu á rafeldsneyti, bæði fyrir innanlandsframleiðslu og mögulegan útflutning, og styrkja þannig tekjustofna ríkissjóðs. Svo má í þessu samhengi velta því upp hvort tekjur af slíku félagi ættu að renna í samfélagssjóð líkt og Norðmenn hafa komið sér upp í tengslum við sína olíuvinnslu.
Með á þessari tillögu minni eru hv. þingmenn Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Þórarinn Ingi Pétursson og Jakob Frímann Magnússon.
Virðulegur forseti. Til að stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi geti orðið að veruleika skiptir stuðningur og aðgerðir opinberra aðila og nýsköpunarsjóða afar miklu máli svo að möguleiki sé á að skapa umhverfi eins og best verður á kosið til að styðja við þróun tækni og lausna.
Það er von mín að ályktunin fái góða málsmeðferð í sinni nefnd. Við á Íslandi erum í sterkri stöðu til orkuskipta. Þar af leiðandi þurfum við að gæta þess að tækifærin sem liggja fyrir í þessum málaflokki renni okkur ekki úr greipum. Tæknin er til staðar og okkur ber að nýta hana í þágu þjóðarinnar.