154. löggjafarþing — 60. fundur,  30. jan. 2024.

stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi.

9. mál
[16:48]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Sá sem hér stendur er áhugamaður um rafeldsneyti og þetta er bara hluti af því sem við erum að fara í gegnum og munum fara í gegnum á næstu árum og áratugum varðandi orkuskipti og markmið okkar með kolefnishlutleysi. En ég hef efasemdir um hugmyndafræðina hér og vildi kannski aðeins spyrja út í það. Í dag eru nú þegar miklar hugmyndir um og verið að vinna í verkefnum sem snúa að rafeldsneyti og búa það til, hvort sem orkuberinn er ammóníak, metanól eða hvað það á að vera, og einkafyrirtæki eru á fullu í þessu. Þetta eru gríðarlega stór og mikil verkefni og fjárfrek. Við erum kannski með fjóra staði á Íslandi sem eru á fullu í þessu núna í dag. Á Reyðarfirði er búin að vera mikil vinna í nokkur ár við að koma þessu á, við hliðina á álverksmiðjunni í Reyðarfirði, á lóð sem viðkomandi fyrirtæki hefur fengið í það. Það er á Grundartanga, þar er verið að vinna á fullu í þessu þar. Svo hefur verið talað um Helguvík og í Finnafirði, einn góður valkostur. Það þarf mikið afl og mikla orku til að framkvæma svona og þetta eru miklar fjárfestingar. Auðvitað hefur lengi verið talað um á Íslandi að þetta sé góður endir fyrir umframorku, að nýta yfir í rafeldsneyti, en það þarf alltaf að vera svona „base load", afsakið, frú forseti, það er æskilegt að hafa líka aðkomu annarrar orku, forgangsorku.

En aðalatriðið í þessu: Er hugmyndin hér bara ein ríkislausn varðandi þessi mál? Hver á þá aðkoma einkageirans að vera og fjárfesting þeirra fyrirtækja sem hafa verið að vinna í þessu undanfarin ár? Hvernig hugsar framsögumaður málsins þann vinkil?