stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir andsvarið sem er mjög gott. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður kom inn á að það eru aðilar að skoða þetta nú þegar, einkaaðilar að skoða það að koma að rafeldsneytisframleiðslu hér á landi, sem er mjög gott. Það segir okkur bara nákvæmlega það sem kom fram í minni ræðu, að áhugi fjárfesta fyrir þessu verkefni hér á landi er mikill. Það er á engan hátt verið að stíga á tærnar á þeim eða þeim verkefnum. Sú raunstaða sem við stöndum hins vegar frammi fyrir í dag er að framleiðsla á rafeldsneyti mun ekki borga sig nema hún verði til útflutnings líka samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum í dag. Slíkt fyrirtæki mun ekki bera sig nema það fái möguleikann á að selja út, innanlandsmarkaður er ekki nægilega öflugur.
Þá kemur að þessu stóra spurningarmerki, sem ég veit að ég og hv. þingmaður erum nú sammála um og deilum áhyggjum af, varðandi orkuöflun hér á Íslandi. Það er náttúrlega risaþáttur í þessu verkefni, þ.e. hvernig á að ná í orkuna. Um það hefur okkur greint töluvert á í þessum þingsal, bæði hvað mikið vanti af orku og í hvað hún eigi að fara. Ég er í raun og veru bara að segja með þessari tillögu minni að mér finnist eðlilegt að við skoðum þann möguleika hvort ríkið eigi að stíga þarna inn í og hvort það myndi nást betri sátt hér í þessum þingsal og eins úti í samfélaginu — vegna þess að það er ljóst að það þarf aukna orku og væntanlega þyrfti að virkja fyrir svona framkvæmd — hvort það yrði auðveldara og meiri sátt um slíka framkvæmd ef hún væri í eigu ríkisins heldur en í eigu einkaaðila.