stofnun ríkisfélags um rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir seinna andsvarið. Það segir hér í þessari ágætu þingsályktunartillögu að ályktað sé að fela ríkisstjórninni að taka þetta til frumathugunar. Frumathugunar, hv. þingmaður. Væntanlega koma úr þeirri frumathugun einhverjar niðurstöður. Ein niðurstaðan getur verið sú að þetta sé betur komið hjá einkaaðilum. Ein niðurstaðan getur verið sú að við þurfum, alveg eins og hv. þingmaður sagði áðan, að skoða betur skattalega umhverfið og hvernig við getum fengið tekjur í gegnum það. Og þó að hv. þingmaður haldi kannski að hann sé kominn aftur til ársins 1952, þá er það nú ekki þannig og ég stend fastur á því að það sé þess virði að skoða hugmyndina. Ég nefni hér í minni þingsályktunartillögu þennan þjóðarsjóð. Menn voru nú ekkert hoppandi kátir hér fyrir nokkrum árum þegar var verið að tala um þjóðarsjóð til þess að koma til móts við krítískar aðstæður í íslensku samfélagi, sem við höfum nú heldur betur upplifað á síðustu árum og erum að upplifa núna. Það hefði nú ekki verið neitt verra að vera með þjóðarsjóð til að aðstoða varðandi stöðuna í Grindavík. Ég held að það sé algerlega þess virði að skoða kosti og galla þess að ríkið komi inn í þessa fjárfestingu. Ég geri mér grein fyrir því að við hv. þingmaður erum kannski ekki á alveg nákvæmlega sama stað í þessu en við höfum báðir sama áhugann á þessu verkefni, hvort sem það verður í höndum ríkis eða einkaaðila, því þetta er eitthvað sem gæti skipt íslenskt hagkerfi verulega miklu máli og íslenska þjóð til framtíðar.