154. löggjafarþing — 60. fundur,  30. jan. 2024.

breyting á ýmsum lögum til að bæta stöðu námsmanna.

13. mál
[18:23]
Horfa

Flm. (Gísli Rafn Ólafsson) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og stuðning við frumvarpið. Það hefði verið óskandi að flokkur hv. þingmanns hefði verið með á þessu frumvarpi en því miður sá hann sér það ekki fært. Mig langaði að snerta fyrst á hlut sem hv. þingmaður nefndi sem er þetta jöfnunarhlutverk sjóðsins, þ.e. að gefa fólki jafnan rétt til náms. Að sama skapi erum við að sjá að það er byrjað að bjóða hér á landi upp á einkavædda lánasjóði, námslán, á sama tíma og verið er að draga úr því hvað Menntasjóður gerir. Stjórnendur sjóðsins og ráðherra hafa jafnvel talað fallega um hvað umsóknum hefur fækkað mikið sem er akkúrat vegna þess, eins og ég nefndi með þessum tölum áðan, að um leið og þú ert kominn með einhver laun yfir sumarið eða laun yfir veturinn þá hreinlega hefurðu ekki lengur kost á því að fá lán. Það er ástæðan fyrir því að fólk er ekki að sækja um. Á ég að vera að sækja um og fá 10.000 kr. á mánuði? Það hreinlega gengur ekki upp.

Mig langaði að spyrja hv. þingmann hvernig hann sæi fyrir sér að Menntasjóðurinn ætti að virka sem jöfnunartæki ef og þegar hv. þingmaður og hans flokkur kemst til valda.