154. löggjafarþing — 61. fundur,  31. jan. 2024.

Störf þingsins.

[15:10]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf):

Virðulegi forseti. Ekki þarf að tíunda þá stöðu sem við Íslendingar erum í um þessar mundir þegar kemur að glímu okkar við náttúruöflin. Þá er ég ekki að tala um vetrarhríðina sem lemur húsið að utan heldur auðvitað eldvirknina sem er vöknuð til lífsins á Reykjanesskaganum og hefur leitt til þess að við höfum þurft að rýma heilt bæjarfélag. Það er til marks um samstöðu okkar sem þjóðar að við höfum brugðist hratt við og héðan frá Alþingi berast þau skilaboð, vonandi hátt og skýrt, til Grindvíkinga að við stöndum með þeim í þessum hremmingum. Undanfarna daga hefur hæstv. fjármálaráðherra rætt um kostnað þann sem mun falla á ríkissjóð vegna þessarar stöðu og er hann verulegur eins og gefur að skilja. Eins hefur hún reifað þá hugmynd að hér verði komið á fót þjóðarsjóði til að takast á við svona áföll í framtíðinni, þ.e. að eyrnamerkja peninga sem koma í ríkiskassann viðbrögðum við náttúrutengdum áföllum. Ég sá einhvers staðar því haldið fram að þetta yrði eins og norski olíusjóðurinn, en það er nú ekki alveg nákvæmt, þeir fjármunir koma auðvitað aldrei inn í norskt hagkerfi. En gott og vel. Staðan er hins vegar sú að burt séð frá rausnarlegri söfnun Færeyinga fyrir Grindvíkinga þá stöndum við Íslendingar nokkurn veginn ein í þessu verkefni, a.m.k. þegar kemur að því að fjármagna tjónið.

Ég nefndi í blaðagrein sem ég skrifaði fyrir nokkrum vikum að ef við hefðum borið gæfu til að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið þá þyrfti svo ekki að vera. Dæmi um slíkt er að Evrópusambandið starfrækir sjóð sem er hugsaður til að mæta áföllum á borð við þessi, eldgosum þar á meðal. Evrópusambandið, eins og fjöldamargir hér inni vita auðvitað, snýst ekki bara um efnahagsmál heldur er það samfélag. Það stendur saman þegar þörf krefur. Þessi sjóður er dæmi um slíkt. Við Íslendingar höfum ákveðið að taka þátt í ýmsum þáttum þessa samstarfs og höfum notið góðs af samstöðunni, t.d. í Covid-19. Við höfum samt ekki enn stigið skrefið inn í samfélagið.

Herra forseti. Kannski er nú, í ljósi þess að við erum, eftir því sem vísindamenn segja, að fara inn í nýtt skeið náttúruhamfara, tími til kominn að fara að gera það svo að við þurfum ekki að takast á við það alveg ein.