154. löggjafarþing — 61. fundur,  31. jan. 2024.

Störf þingsins.

[15:14]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Það er fagnaðarefni fyrir okkur öll að sjá að verðbólgan er á niðurleið samkvæmt því sem fram kom í gær. Eins og við vitum öll er það gríðarlegt hagsmunamál fyrir okkur öll. Þetta er hagsmunamál fyrir fjölskyldur landsins, fyrirtæki, sveitarfélög og ríkissjóð. Verðbólgan þarf hins vegar væntanlega að lækka enn frekar og hraðar til að við förum að sjá einhverjar vaxtalækkanir hjá Seðlabankanum. Við verðum hins vegar að vera meðvituð um það að þessi lækkun núna skýrist að miklu leyti af útsölum í janúar en vonandi heldur þessi þróun áfram.

Það er þó einn stór óvissuþáttur í þessu öllu sem verður verkefni okkar hér í þessum sal að leysa. Eins og við vitum er mikil krafa á útgjöld ríkisins vegna kjarasamninga. Þá er mikil samstaða um það í stjórnmálunum að leysa hratt og vel úr vanda Grindvíkinga þótt það muni þýða aukin ríkisútgjöld. Það er auðvitað þannig að aukin útgjöld ríkisins geta leitt til verðbólgu ef ekki koma til skynsamlegar aðgerðir á móti, til að mynda með hagræðingu eða eftir atvikum aukinni tekjuöflun. Ég held að það verði seint sátt um að bregðast við þessu með skattlagningu á það fólk sem nú er að semja um kjarabætur við atvinnulíf, ríki og sveitarfélög. Sú leið fæli í sér að ríkið væri að fjármagna kjarabætur til þessa fólks með annarri hendi en hirða til baka með hinni. Mér finnst að frekari eignasala í fjármálakerfinu þurfi að vera í einhverjum forgangi þegar þetta allt saman er skoðað vegna þess að hluti af þessum væntanlegu útgjöldum eru einskiptisútgjöld og þá væri hægt að nota þessa fjármuni til að mynda til að grynnka á skuldastöðunni. Það sem snýr að varanlegum útgjöldum í tilfærslukerfin þarf hins vegar að fjármagna með varanlegri aðgerðum. Ég hef saknað þess mjög að ríkisstjórnin sýni á spilin þegar við blasir mikil útgjaldaaukning ríkissjóðs núna á næstunni, allt að 150 milljarðar, jafnvel 200 milljarðar kr. ef allt er talið. Það er líka full ástæða til að hafa áhyggjur af því að þessi ríkisstjórn muni ekki valda þessu stóra verkefni. Til að hægt sé að gera þetta þá þurfa stjórnmálin að ganga í takt og það höfum við svo sannarlega ekki séð við ríkisstjórnarborðið á undanförnum misserum.