Störf þingsins.
Herra forseti. Fyrr í þessum mánuði þá birtust fréttir af skimunum starfsmanna flugfélags fyrir ADHD-lyfjum. Þar segir að dæmi séu um að verðandi flugliðar sem farið hafa í gegnum ráðningarferli og þjálfun hjá flugfélaginu Play hafi ekki séð sér fært að starfa hjá flugfélaginu eftir að þau fengu upplýsingar um að nýleg Evrópureglugerð væri með tiltekin ADHD-lyf á bannlista. Starfsfólkið gæti átt von á að sæta fyrirvaralausri lyfjaskimun og treysti sér ekki til að vera án lyfjanna. Á heimasíðu ADHD-samtakanna segir að samtökin hafi sent Isavia, Samgöngustofu, Icelandair, Play, Heilsuvernd og Fluglæknasetrinu formlegt erindi þar sem óskað er eftir skýrum svörum við spurningum sem varða starfshætti þessara rekstraraðila þegar kemur að ráðningum og eftirliti með heilsufari starfsfólks, ekki síst með tilliti til ADHD og mögulegrar lyfjanotkunar vegna þess. Þar segir, með leyfi forseta:
„Í ljósi fjölmiðlaumfjöllunar á undanförnum mánuðum um innleiðingu skimana flugáhafna hér á landi, m.a. vegna svokallaðra „geðvirkra efna“ og reynslu starfsfólks íslenskra flugfélaga af framkvæmd umræddra skimana, telja ADHD samtökin ljóst að með margvíslegum hætti sé nú brotið gegn ýmsum grundvallarréttindum fólks sem starfar við flug á Íslandi, ekki síst fólki með ADHD.“
Herra forseti. Fólk með ADHD tekur lyfin svo það geti sinnt störfum sínum betur og átt betra líf en án lyfjanna. Jafnvel þó að vitnað sé til alþjóðlegra reglugerða þá hlýtur að þurfa að gera greinarmun á misnotkun og notkun lyfja af læknisráði. Það er ólíðandi, forseti, að atvinnuréttindi fólks séu takmörkuð með þessum hætti og þetta verðum við hér inni að skoða betur.