154. löggjafarþing — 61. fundur,  31. jan. 2024.

Störf þingsins.

[15:21]
Horfa

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Á síðasta ári var mikið rætt um eflingu framhaldsskólans með það að markmiði að auka gæði og fjölbreytni náms og auka farsæld barna og ungmenna. Þá átti að efla framhaldsskólana með sameiningu ákveðinna skóla. Þær tillögur vöktu hörð viðbrögð í samfélaginu og fór svo að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra setti fyrirætlanir sínar á ís um stund.

Þó er önnur breyting sem varð á framhaldsskólakerfinu fyrir tæpum áratug: Stytting námstíma til stúdentsprófs úr fjórum árum í þrjú. Enn virðast vera ákveðnar efasemdir um framkvæmd og gagnsemi þess úti í samfélaginu. Áhyggjur hafa vaknað af lakari námsárangri, verr undirbúnum nemendum í háskólanámi og aukinni vanlíðan ungmenna. Ef umrædd stytting hefði verið gerð til að standast alþjóðlegan samanburð og samkeppni, líkt og kom fram í hvítbók um umbætur í menntun frá 2014, af hverju var skólaárið þá ekki lengt til samræmis við það sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum til þess að koma til móts við styttinguna? Þessar áhyggjur heyrast víða og þeim ber að taka alvarlega.

Hæstv. forseti. Í skýrslu mennta- og menningarmálaráðherra frá árinu 2020, sem unnin var að beiðni Alþingis um árangur og áhrif styttingar á námstíma til stúdentsprófs úr fjórum árum í þrjú, kom fram að til stæði að setja af stað vinnu til fimm ára sem miðaði að því að leggja samræmt mat á það hversu vel undirbúnir nemendur koma til háskóla með því að fylgjast með þróun námsárangurs. Í ályktun Landssamtaka íslenskra stúdenta og Sambands íslenskra framhaldsskólanema frá því í mars í fyrra er það áréttað að ekkert hafi gerst í þessu máli og krafa gerð á mennta- og barnamálaráðherra að lagt verði mat á áhrif þess að námstími til stúdentsprófs hafi verið styttur. Það má staldra við, meta og endurskoða ákvarðanir sem hafa verið teknar. Við erum og höfum verið að ganga í gegnum stórar tæknibreytingar og samfélagslegar áskoranir eru miklar. Við þurfum góða menntun á öllum skólastigum. Ungmennin okkar þurfa tíma.