sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að vera langorður. Tilgangur minn með því að koma hér upp í dag er svipaður og þeirra og hér hafa talað, að þakka fyrir gott starf í nefndinni. Það er gaman að koma inn í störf sem eru með þessum hætti. Ég er, eins og þingheimur veit, að fylla í skarð þingmanns sem er í leyfi og kem inn í störf nefnda svolítið „random“ en það er ákaflega ánægjulegt að sjá og verða vitni að starfi nefndar eins og í þessu tilfelli í tengslum við þetta tiltekna mál. Ekki aðeins er það unnið hratt og örugglega, vegna þess að tilefnið kallar á það, heldur er það líka mjög vandað. Spurninga er spurt, það er hlustað og gerðar breytingar þegar fram koma málefnalegar athugasemdir. Þetta er svona klassískt dæmi um það sem fer allt of lágt í samfélaginu í dag, þ.e. þegar vinnubrögð hér á þingi eru góð. Það er gott að verða vitni að því og rétt að vekja athygli á því og ég þakka kærlega fyrir þetta starf.
Mig langar líka, eins og síðasti ræðumaður, að minna á að það þarf að kynna þetta úrræði vel og kannski ekki síst gagnvart þeim sem eru af erlendu bergi brotnir og hafa minna bakland hér á þessu landi og þekkja minna til hvernig kaupin gerast á eyrinni. Ég veit svo sem að það fólk sem starfar að þessum málum úti í feltinu er meðvitað um það þannig að ég hef ekki miklar áhyggjur af því en engu að síður finnst mér ástæða til að nefna það hér. En enn og aftur, ég er stoltur af því að vera á þessu máli og þakka fyrir gott starf í nefndinni.