búvörulög.
Virðulegi forseti. Ég vil taka eindregið undir með hæstv. hv. þingmanni, það þarf að gera betur og það þarf að efla íslenska landbúnaðarframleiðslu mun betur og halda betur utan um bændur. Ég er meira að hugsa um bændur í þessu samhengi en akkúrat stóru milliliðina, sem verða líka að vera sterkir og eru nauðsynlegir til að styðja við allt kerfið en ég hef meiri áhyggjur af því hvernig við getum stutt áfram við bændur og íslenska landbúnaðarframleiðslu. Við í Viðreisn höfum óhikað sagt: Við viljum fjárfesta enn frekar í íslenskum landbúnaði en hins vegar er að okkar mati, og ég held að kvartanir bænda undirstriki þá skoðun okkar, eitthvað að kerfinu eins og það er byggt upp núna, að ekki er hægt að sjá stöðu bænda sterkari, og sérstaklega kannski sauðfjárbænda, en raun ber vitni og við þekkjum ágætlega.
Hv. þingmaður nefndi réttilega sameiningu og samruna Kjarnafæðis og Norðlenska, sem var gerð undir núverandi lagaverki, undir regluverki samkeppnislaga. Þar greinir okkur kannski á. Ég er svo sannfærð um að samkeppnin, hvar sem borið er niður, muni auka nýsköpun, frelsi, sprotastarfsemi o.s.frv., hvort sem er í landbúnaði — við sjáum það í öðrum greinum, í ferðaþjónustu, við erum að sjá það með markvissum hætti í sjávarútvegi o.s.frv. Þessi samruni var gerður eftir ákveðnum tilmælum frá Samkeppniseftirlitinu þannig að það er hægt að fara í sameiningar og samruna fyrirtækja undir núverandi regluverki. Mér finnst meiri bragur á því að það sé gert. Hvers vegna treystir hv. þingmaður ekki núverandi regluverki til að halda áfram á þessari leið sem hann fór svo vel yfir? Þessi samruni hefur skilað sér betur en menn bundu kannski vonir við. Ég vona svo innilega og ekki síst að sá samruni sé að skila sér síðan beint til bænda. Það er það sem við þurfum á að halda. (Forseti hringir.) Þess vegna er mín spurning til hv. þingmanns, sem ég veit að lifir og hrærist sem bóndi og er með mikinn metnað fyrir þeirra hönd, af hverju við eigum ekki frekar að reyna að styrkja þessar grunnreglur samfélagsins um samkeppni, (Forseti hringir.) regluverkið um að halda áfram á þeirri braut undir regnhlíf samkeppninnar en ekki að fara í undanþágur og því um líkt.