154. löggjafarþing — 62. fundur,  31. jan. 2024.

búvörulög.

33. mál
[17:41]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Magnúsi Árna Skjöld Magnússyni fyrir sína ræðu. Hann fer fögrum orðum um Evrópusambandið. Sá sem hér stendur hefur lengi verið formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins eða síðastliðin sex ár. Fyrir fjórum, fimm árum sótti ég ásamt stjórnmálanefnd NATO-þingsins fund í Addis Ababa í Eþíópíu með Afríkuráðinu og það sem Afríkuráðið lagði mikla áherslu á við evrópska þingmenn Evrópusambandsríkjanna var: Af hverju leyfi þið okkur ekki að flytja matvæli til Evrópu? Þið eruð bara með þetta rosalega tollabandalag og haldið öllum úti og við fáum ekki að flytja inn matvæli.

Við erum með mikla umræðu í dag innan NATO-þingsins um Úkraínustríðið, sem við hæstv. forseti þekkjum ágætlega, og í tilefni af því hefur skapast meiri umræða innan Evrópu og NATO-ríkjanna um fæðuöryggi sem lykilhugtak í allri umræðu. Það kom mér gríðarlega á óvart þegar ég heimsótti þýska þingið með vísinda- og tækninefnd NATO-þingsins í september síðastliðnum hversu mikla áherslu þýska þingið og forsvarsmenn þar og sérfræðingar sem við heimsóttum vítt og breitt um Þýskaland lögðu á fæðuöryggi, fæðuöryggi, fæðuöryggi. Það var höfuðatriði. Á sama tíma og við fórum um Þýskaland voru alls staðar mótmæli þýskra bænda — alls staðar, úti um allt. Í Kiel seinkaði manni um 30 mínútur að komast á flugvöll. Það voru slæm kjör bænda sem verið var að mótmæla og mikið ósætti. Svo erum við að upplifa aftur þessa dagana bæði í Frakklandi og Þýskalandi gríðarleg mótmæli einmitt vegna landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Þannig að ég spyr bara: Er það töfralausnin hvernig staðið er að málum í dag? Og er hv. þingmaður ekki sammála mér um að Evrópusambandið er í eðli sínu tollabandalag þegar er verið að tala um samkeppni hér á milli markaða, (Forseti hringir.) þegar er verið að útiloka Afríkuríki og önnur ríki í stærra samhengi út fyrir landamæri þessara ríkja?