154. löggjafarþing — 62. fundur,  31. jan. 2024.

breyting á ýmsum lögum til styrkingar á réttarúrræðum vegna umhverfismála og réttindum til heilnæms umhverfis.

34. mál
[18:29]
Horfa

Brynhildur Björnsdóttir (Vg):

Forseti. Allar manneskjur eiga rétt á hreinu, heilbrigðu og sjálfbæru umhverfi sem er nauðsynlegt til að uppfylla ýmis mannréttindi eins og réttinn til lífs, heilsu, matar, vatns, hreinlætis og þroska, svo dæmi séu tekin. Þá er rétturinn til upplýsinga, þátttöku og réttaröryggis eða aðgengis að réttarkerfinu mjög mikilvægur þegar kemur að því að vernda þetta sama umhverfi. Þrátt fyrir fjölda alþjóðasamþykkta og lagasetningar þjóðríkja þá hnignar ástand umhverfisins og náttúrunnar. Meðal ógna sem steðja að náttúru og umhverfi má nefna ógn við fæðuöryggi, en það var einmitt til umræðu hérna rétt áðan, loftslagsbreytingar, hnignun líffræðilegs fjölbreytileika, mengun. Hækkandi hitastig á heimsvísu eykur á skort á hreinu vatni. Loftmengun er talin ein stærsta umhverfisógn við heilsu og leiðir af sér 7 milljónir ótímabærra dauðsfalla á ári hverju. Landfok, skógareldar, þiðnun sífrera. — Allt hefur þetta áhrif á lífsgæði og lífvænleika mannfólks sem, hvort sem okkur líkar betur eða verr, er háð náttúrunni og umhverfinu um allt sitt.

Þessi röskun á umhverfi hefur margfalt meiri áhrif á fólk í jaðarsettri stöðu, bæði samfélagslega og á heimsvísu. Meira en 38 milljónir manna flúðu heimili sín af loftslagstengdum völdum árið 2021, mikill meiri hluti úr fátækari hlutum heims. Langvinn umhverfisvá og tilheyrandi efnahagsáhrif styrkja úreltar kynjahugmyndir í sessi sem hefur áhrif á heilbrigði og öryggi kvenna og stúlkna. Börn geta orðið fyrir varanlegum þroskaskaða vegna skorts af völdum náttúruhamfara og fólk sem býr í meira samlyndi við náttúruna en margir aðrir verður fyrir óbætanlegum skaða þegar heimahagar þess verða óbyggilegir af völdum loftslagsbreytinga.

Við Íslendingar þekkjum áhrif náttúruhamfara af eigin raun og þurfum því líka að huga að lagasetningu hérlendis um þau grundvallarmannréttindi að hafa eitthvað að segja um umhverfi sitt og líf og geta beitt sér í þeim málum fyrir dómstólum, til að mynda ef til manngerðra náttúruhamfara kæmi. Þessi réttindi eru bæði fyrir einstaklinga og félagasamtök. Þau eru fyrir alla sem láta sig framtíðina að einhverju varða.