154. löggjafarþing — 63. fundur,  1. feb. 2024.

ástandið í fangelsismálum og fjárheimildir til þeirra.

[10:37]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ráðherra svarar: Já, næg mönnun, menntun fangavarða, meðferðarúrræði fanga, nám og starfsþjálfun fanga, heilbrigðisþjónusta fanga. Ég sé ekki þennan pening, ég sé ekki þessa aðstöðu. Svo að ég reyni aðeins á þolinmæði forseta: Telur ráðherra réttlætanlegt að greiða föngum 415 kr. á klukkustund fyrir vinnu sem leiðir til þess að fangar eiga oft ekki fyrir mat? Það leiðir að sögn fanga til þess að menn fá lánað, sem leiðir til ofbeldis, kúgunar, upptöku á fatnaði og eigum. Þetta eru nokkrar athugasemdir fanga sem ég hef fengið. Fangar og tengdir aðilar ganga svo langt að kalla fangelsin kjötgeymslur í núverandi mynd. Núverandi staða er þannig að allir fangar eru settir undir sama hatt. Þannig eru fangar sem eru jafnvel í mikilli neyslu og telja sig ekki hafa neinu að tapa vistaðir á sömu deild og fangar sem eru í bata eða að reyna að finna betrun. Dæmi eru um að menn klári langa dóma, 24 mánuði eða lengur, án þess að hitta sálfræðing einu sinni. Lyfjameðferð er takmörkuð til að sporna við fíkniefnavanda og því eru nauðsynleg lyf oft ekki aðgengileg föngum, sérstaklega til að meðhöndla athyglisbrest og ofvirkni. Sturtubúnaður fanga í Húsi 3 á Litla-Hrauni (Forseti hringir.) er með öllu ófullnægjandi. Ekki einungis þurfa fangar að baða sig í sameiginlegu rými heldur er sturtubúnaður (Forseti hringir.) óvirkur og bilaður svo að fangar hafa tekið til þess ráðs að baða sig með garðslöngu sem hefur verið hengd yfir slá og skilur að rými milli salernis og sturtuaðstöðu. Er þetta boðlegt? Er þetta starfhæft í fimm til sex ár?