stefna ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum.
Herra forseti. Ríkisfjármálin eru í ólestri. Með áframhaldandi óbreyttri nálgun þessarar ríkisstjórnar eru tvær leiðir færar: Hærri skattar á millistéttina eða auknar skuldir sem næsta kynslóð mun þurfa að borga. Hvort tveggja er auðvitað ótækt. Heiðar Guðjónsson fjárfestir gaf ríkisstjórninni þessa einkunn í útvarpinu í morgun: Hún eyðir eins og drukkinn sjómaður, alveg sama hvað gerist, það er ekkert sem stoppar. Þetta er rétt, útgjöldin hafa vaxið. En hvað stendur eftir? Hefur þjónustan í heilbrigðiskerfinu batnað, í skólakerfinu, í samgöngum? Svarið við þessu er nei. Meira að segja í blússandi hagvexti var ríkissjóður rekinn með halla og allir sem hafa komið nálægt rekstri vita að aðhald þarf að vera stöðugt og markvisst, líka á góðu árunum, sérstaklega á góðu árunum, því annars er erfitt að komast í gegnum þau mögru.
Saga þessarar ríkisstjórnar dregur óneitanlega úr trúverðugleika þess þegar nýr fjármálaráðherra segist ætla að viðhalda ábyrgri fjármálastefnu og ábyrgri efnahagsstefnu. Hvar ætlar ráðherra að skera niður? Hvar ætlar ráðherra að draga úr vexti báknsins án þess að það komi niður á grunnþjónustunni? Ætlar ráðherra loksins að fara að forgangsraða útgjöldum með hagsmuni almennings í huga? Ætlar ráðherra loksins að fara að skera af efstu lögum stjórnsýslunnar? Þetta eru hlutir sem Viðreisn hefur ítrekað kallað eftir undanfarin ár. Það er kominn tími til þess að stjórnvöld gefi þingi og þjóð skýr svör um nálgun sína í efnahagsmálum.