undirbúningur og fjármögnun nýs fangelsis.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að segja það alveg skýrt að þeim verkefnum sem ríkið á að sinna á að vera sinnt með sóma og við erum örugglega öll sammála um það hér að það þarf nýtt fangelsi og þessi mál þurfa að vera í lagi. Ríkið er búið að setja 400 milljónir í Sogn og 14 pláss í opnu rýmin fyrir kvenkyns fanga. Þessu til viðbótar eru þessar fjárheimildir auknar um samtals 340 millj. kr. á árunum 2024 og 2025 til þess að fjölga þessum rýmum á Sogni. En af því að ég segi að það eigi að vera algerlega skýrt að þeim grundvallarverkefnum sem ríkið á að sinna sé almennilega sinnt þá sakna ég þess oft í þessum sal að hlutirnir séu settir í einmitt það samhengi. Við sitjum enn þá á eignarhlut í Íslandsbanka, við sitjum á fullum Landsbanka, við erum með allar þessar stofnanir, við erum með of flókið regluverk. Við höfum svo mörg tækifæri til þess að hafa skýra forgangsröðun á því sem ríkið á að sinna og gera það vel og láta aðra um rest; hafa útboð á þjónustu þar sem við köllum eftir besta verði, sem of margir hér eru smeykir við. Í öllu slíku samhengi, ef við gerðum þetta almennilega (Forseti hringir.) og um það ríkti frekari pólitísk samstaða og hægt væri að koma því í gegnum þingið, þá væru þessi verkefni smáverkefni, til hliðar við allt það sem við bindum opinbert fjármagn í í dag og ættum ekki að gera.