154. löggjafarþing — 63. fundur,  1. feb. 2024.

skerðing námslána vegna vinnu með námi.

[11:04]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf):

Virðulegi forseti, hv. þingheimur, hæstv. háskólaráðherra og kæra þjóð. Það er mér mikið áhugamál að námsmenn fái að vinna fulla vinnu, ef þeir vilja svo, með sínu námi svo að það skerði ekki námslán þeirra til framfærslu. Sjálfur fór ég til Ameríku á sínum tíma og stundaði þar nám í háskóla, Florida International University. Ég var svo heppinn að geta unnið með skólanum eins og ég vildi og ég lærði ekki síður af þeirri vinnu en það sem ég lærði í skólanum. Þetta er svona þar sem allir græða.

En núna kemur fyrirspurnin: Menntakerfið er ein af grunnundirstöðum samfélagsins og þar spilar námslánakerfið lykilhlutverk. Námslán hafa gert fjölda fólks kleift að öðlast menntun sem ella hefði þurft að hverfa frá námi og halda út á vinnumarkaðinn. Óumdeilt er að aukinn aðgangur að menntun án tillits til efnahags dregur úr stéttaskiptingu og eykur verðmætasköpun í samfélaginu. Námslánakerfið er þó langt því frá að vera fullkomið. Námslán eru háð ýmsum skilyrðum og lítið þarf að fara úrskeiðis til þess að námsmenn missi bróðurpart framfærslu sinnar. Helsta hindrunin í vegi námsmanna er skerðing á framfærslulánum Menntasjóðs vegna tekna en frítekjumark Menntasjóðs fyrir árið 2023 er aðeins 1.622.000 kr. yfir allt árið. Námsmaður í sumarvinnu á lágmarkslaunum nær hæglega að komast upp fyrir þetta frítekjumark og skerðast þá framfærslulán hans sem því nemur.

Hæstv. háskólaráðherra hefur sagst ætla að leggja fram skýrslu um þetta málefni á haustþingi. Sú skýrsla er ekki komin fram enn. Nú kemur mergurinn málsins: Ráðherra getur breytt og hefur fulla heimild til þess að (Forseti hringir.) breyta reglum um framfærslulán með einu pennastriki. (Forseti hringir.) Ég hvet ráðherra til að gera slíkt.