154. löggjafarþing — 63. fundur,  1. feb. 2024.

skerðing námslána vegna vinnu með námi.

[11:06]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma með þessa umræðu hér í þingsal. Markmiðsákvæði Menntasjóðs námsmanna eru mjög skýr og grundvallast á því að nemendur hafi jöfn tækifæri til náms óháð efnahag og það er það sem við eigum að tryggja og vinna að. Nú liggur fyrir skýrsla um lagabreytingarnar sem farið var í um Menntasjóð námsmanna þar sem við sjáum vel að markmiðsákvæði sjóðsins eru í hættu. Mun færri en áætlanir gerðu ráð fyrir eru að taka námslán í íslensku samfélagi og markmið um að breyta kerfinu í styrkjakerfi heppnaðist kannski ekki alveg sem skyldi.

Hv. þingmaður spyr hér um frítekjumark atvinnutekna. Við gerðum könnun hjá nemendum sem er birt í skýrslunni þar sem við sjáum að viðhorfið til námslána hefur líka gjörbreyst. Það er ekki mikill vilji hjá nemendum til að taka námslán burt séð frá því hverju við myndum breyta í kerfinu. Við sjáum að 40% nemenda í háskólanum eru í vinnu og vilja vera í vinnu með skóla. Ég tek undir með hv. þingmanni að ég vil hafa val. Ég vil að nemendur geti sinnt námi sínu án þess að vera í vinnu en vilji þeir vinna með skóla þá sé val til þess. Ég hef því verið að skoða hvort við eigum að fara þá leið að tvískipta frítekjumarkinu eins og gert er í Danmörku þannig að sumarvinnan og sú vinna sem er ekki unnin á tímum sem skólinn er í gangi komi ekki inn í frítekjumarkið. Það held ég að sé leið sem væri sanngjarnt að fara. Þetta hef ég verið að skoða með Menntasjóði námsmanna. Í heildina held ég að það sé gríðarlega mikilvægt að (Forseti hringir.) við tryggjum þetta valfrelsi og leyfum nemendum, og tek undir með hv. þingmanni, að hafa val um hvernig þau afla tekna á meðan þau eru í námi, á sama tíma og við bætum Menntasjóð námsmanna til að styðja nemendur sem geta ekki eða velja ekki að vinna með fullu námi.