154. löggjafarþing — 63. fundur,  1. feb. 2024.

norrænt samstarf 2023.

625. mál
[12:37]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir yfirferðina á þessari skýrslu Íslandsdeildar Norðurlandaráðs. Ég er einn þeirra sem sitja í Íslandsdeildinni og mig langaði að nota tækifærið til að segja eitt sem er ánægjulegt í starfi þingmannsins — og rétt sem kom fram í máli hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur í fyrri skýrsluumræðu að þetta er stærsta landsdeildin, ég held það hafi verið hv. þingmaður sem kom inn á það, engu að síður er það staðreynd — en það er gaman að segja frá því og gaman að hafa upplifað það sem tiltölulega nýr þingmaður á þingi hvað landsdeildirnar eru þegar upp er staðið mikill sameiginlegur vettvangur fyrir Íslands hönd í þessum verkefnum sem við eigum að sinna fyrir hönd þingsins. Það er aldeilis ekki undantekning á því í íslensku landsdeildinni hvað varðar Norðurlandaráð þar sem við vinnum þétt og náið saman, bæði hér heima á okkar fundum og líka þegar við sækjum fundina þegar þeir eru í einhverju hinna Norðurlandanna. Þetta er skemmtilegt verkefni, þetta er skemmtilegt viðfangsefni og það er gaman að geta komið sameinuð fram og unnið sameiginlega. Eðlilega erum við með skiptar pólitískar skoðanir okkar á milli en við stöndum þó saman fyrir Ísland sem er gaman og gott að segja.

Mig langaði annars bara að koma stuttlega upp til að taka undir orð hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur varðandi þá vinnu. Hv. þingmaður rakti mjög ágætlega þessa sögu og þetta sem kemur eilíflega upp á öllum fundum og í öllum flokkahópum, þessi saga dvínandi fjármagns í norrænu samstarfi. Ég hygg engu að síður að það sé alveg rétt hjá hv. þingmanni að allir þessir norrænu þingmenn séu sammála um mikilvægi þess en svo hefur fjármagnið kannski ekkert endilega fylgt með. Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að þetta sé afar mikilvægt samstarf fyrir okkur hér á Íslandi og brýnt að við sinnum því og tökum þátt í því á hinum mismunandi plönum og það hefur verið afar gaman að fylgjast með þessari áherslu á vettvangi norrænu ráðherranefndarinnar, hvar við höfum gegnt forystu á síðasta ári.

Ég vil jafnframt taka undir orð hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur um þá samvinnu sem Íslandsdeildin hefur átt við hæstv. samstarfsráðherra, Guðmund Inga Guðbrandsson. Þess er getið í þessari skýrslu sem við ræðum hér hvernig sá hæstv. ráðherra steig inn í mál, bæði með fyrri formennsku og þá með núverandi formennsku, varðandi bæði fjármagnið sem slíkt en eins líka framtíðarsýnina. Ég held að það sé mikill bragur á því að samstarfsráðherrarnir hverju sinni leggi sig mikið fram um þetta samtal og þessa samvinnu við þingvettvanginn sem Norðurlandaráð er. Eigum við þess kost í okkar formennsku að viðhalda þessu með nýrri formennsku Svía þá tel ég að það sé afar mikilvægt vegna þess að þarna þarf augljóslega að byggja brýr í mörgum málum.

Að endingu langar mig bara að segja, vegna þess að það er eitt af því sem kemur fram í formennskuáætlun Íslandsdeildarinnar fyrir árið í ár, að það er áframhald þeirrar umræðu sem fer af stað í tilefni 60 ára afmælis Helsingfors-samningsins, þessa grundvallarsáttmála og opinbera sáttmála í þessu norræna samstarfi. Sannarlega hefur krafan eða viljinn til að horfa til endurskoðunar á honum tekið mið af hörmungarástandi í Evrópu sem miðar að auknum stríðsátökum og því sem við horfum hér upp á og höfum horft upp á á undanförnum misserum. Við sem Norðurlönd höfum sannarlega getað unnið friðsamlega saman í yfir 200 ár en það er líka brýnt að horfa til annarra atriða sem sannarlega þarfnast uppfærslu þegar kemur að mögulegri endurskoðun á samningnum. Þau eru mörg hver tíunduð í þessari skýrslu sem hér liggur fyrir og er til umræðu. Mig langar þó sérstaklega draga fram þau gildi sem við teljum okkur eiga sameiginleg á Norðurlöndum, allt saman fjölþjóðleg samfélög en við teljum okkur engu að síður hafa þessi gildi okkar á milli sem lúta að kynjajafnrétti, stöðu hinsegin fólks, lýðræði og mannréttindum. Þetta, auk umhverfis- og loftslagsmálanna, er augljóslega eitthvað sem við getum lagt af mörkum í íslensku deildinni inn í mögulega endurskoðun á samningnum, auk þess sem hér hefur verið farið yfir áhersluna á frið sem er auðvitað forsenda þess að við getum viðhaldið þessum gildum í samfélögunum, þ.e. jafnrétti, stöðu hinsegin fólks, mannréttindum í því samhengi, lýðræði og svo mætti lengi telja.

Annars þakka ég góða umræðu og hlakka áfram til áframhaldandi samstarfs við Íslandsdeild Norðurlandaráðs. Þetta er skemmtilegur vettvangur.