154. löggjafarþing — 63. fundur,  1. feb. 2024.

norrænt samstarf 2023.

625. mál
[12:42]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Þetta hefur verið fín umræða hér um Norðurlandasamstarf, bæði af hálfu ráðherra, sem fór hérna yfir störf norrænu ráðherranefndarinnar í formannstíð Íslands — og það verður að segjast eins og er, svo ég byrji nú á því, að það er algerlega ljóst að hæstv. ráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson stóð sig gríðarlega vel sem samstarfsráðherra Norðurlanda. Það var ánægjulegt að taka þátt í fundum Norðurlandaráðs þar sem þingmenn annarra Norðurlanda höfðu orð á því hve aðgengilegur samstarfsráðherrann væri sem fór með formennskuna og hversu mikinn áhuga hann sýndi þessu samstarfi. Það skiptir okkur máli, svo því sé til haga haldið, og ég veit að þeir tveir hv. þingmenn, Bryndís Haraldsdóttir, sem er formaður Norðurlandaráðs núna, og Oddný G. Harðardóttir, sem er varaformaður Norðurlandaráðs, situr hér í forsetastól, munu sannarlega ekki vera síðri fulltrúar okkar Íslendinga, bæði þings og þjóðar, í störfum sínum á þessu ári. En Ísland er nú tekið við formennskunni í Norðurlandaráði, eins og hv. þingmenn hafa farið yfir í ræðum sínum og ekki síst hv. þm. Bryndís, títtnefnd, sem fór yfir formennskuáætlun Íslands. Ég hef ekki neinu við þau orð að bæta. Hv. þm. Orri Páll Jóhannsson, kollegi minn í Norðurlandaráði, fór líka yfir málið. En mig langaði að verja smátíma í að fara nokkrum orðum yfir vinnu vinnuhóps forsætisnefndar Norðurlandaráðs sem er að endurskoða Helsinki-samninginn, þ.e. þessa stjórnarskrá Norðurlandasamstarfsins, ef svo má segja. Hið rétta og formlega er að vinnuhópurinn er að skoða málið og meta þörfina á endurskoðun. Það er svolítið tæknilegt orðalag en það velkist svo sem enginn í vafa um að það sem við erum að gera er að koma með tillögu um ekki endilega hvort eigi að endurskoða heldur hvaða þætti ætti þá að taka til skoðunar. Hugmyndin er að vinnuhópurinn skili tillögum sínum til forsætisnefndar Norðurlandaráðs á þemaþingi ráðsins í Færeyjum í byrjun apríl.

Líkt og hv. þingmaður, formaður Norðurlandaráðs, fór hér yfir áðan um skipan hópsins þá er það stundum svolítið flókið og kerfið á það til að búa til ýmsar áskoranir fyrir fólk. Norðurlandaráð er þannig samsett að til viðbótar við að vera skipað 87 þingmönnum frá öllum Norðurlöndum, og síðan auðvitað sjálfsstjórnaríkjunum þremur eftir fyrir fram ákveðnu skipulagi, eru líka starfandi ákveðnir pólitískir hópar innan Norðurlandaráðs. Þeir eru fimm og svo geta einstaka þingmenn verið utan flokka ef þeim svo sýnist af því að við erum jú í pólitík og ekki alltaf sammála. Þó að við séum eitt samþættasta hérað heims, Norðurlöndin, og sannarlega sammála um mun meira en við erum ósammála um, þá er það engu að síður þannig að við erum jú í pólitík þannig að þessir pólitísku flokkahópar stýra vinnunni auðvitað líka og við sem þingmenn Íslandsdeildarinnar t.d., held ég að fari rétt með, sitjum í fjórum af þessum flokkahópum. Já, akkúrat. Það er líka sú tilhögun sem þurfti að koma, þ.e. fulltrúar bæði landsdeildanna og flokkahópanna voru fulltrúar í þessum vinnuhópi. Þannig að vinnan við að koma vinnuhópnum á laggirnar hefur næstum því tekið jafn langan tíma og vinnan sem hefur farið í endurskoðunina en þá fórum við líka af stað fyrir alvöru, svo það sé bara sagt.

Ég sit sem sagt í þessum vinnuhópi fyrir Íslandsdeildina en jafnframt er ég formaður miðjuflokkahóps Norðurlandaráðs, sem er næststærsti flokkurinn. Þar eru þrír flokkar hér á þingi, svo dæmi sé nefnt. Auk Viðreisnar, míns flokks, eru það Framsóknarflokkurinn og Flokkur fólksins. Allir þessir flokkar eiga fulltrúa í Norðurlandaráði, fyrir Ísland. Vinnan fór af stað á þennan hátt: Ég hóf leik sem varaformaður en vegna veikinda formannsins, norsks þingmanns flokkahóps jafnaðarmanna, þá tók ég við sem starfandi formaður þar til Jorodd Asphjell kemur til baka, vonandi hið fyrsta, og hef þess vegna stýrt vinnunni undanfarnar vikur. Þetta hefur verið mjög áhugavert.

Umræðan um þörfina á endurskoðun samningsins, sem var undirritaður 1962 — er það ekki rétt hjá mér? — hefur ekki tekið miklum breytingum. Hún hefur farið um víðan völl undanfarin ár. Þeir eru til, og ég tilheyri þeim hópi svo sem, sem telja þörfina töluvert mikla á að skerpa á ákveðnum hlutum þótt ekki séu teknar einhverjar gríðarlegar kollsteypur, á meðan öðrum finnst þetta alger óþarfi, það sé hægt að skerpa á samstarfinu á einhvern annan hátt. Svo eru flestir kannski einhvers staðar inni á milli. En það er algerlega klárt að hin ófyrirleitna og grafalvarlega, hræðilega innrás Rússa í Úkraínu fyrir núna tveimur árum breytti afstöðu fólks. Í fyrsta lagi gjörbreytti hún umræðunni í Norðurlandaráði og afstöðu fólks til þarfarinnar á því að endurskoða þennan samning. Þá á ég við það að samningurinn tekur ekki að neinu leyti til öryggis- og varnarmála og það var þunginn í umræðunni. Vinnuhópurinn tekur eiginlega þann þunga sem verið hefur í umræðunni á fundum og þingum Norðurlandaráðs, frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu, um öryggis- og varnarmál og fulltrúar Eystrasaltsríkjanna hafa tekið þátt í þeirri umræðu, hafa verið mjög sýnilegir á fundi Norðurlandaráðs, enda fara hagsmunir okkar þar um öryggi og frið í þessum heimshluta náttúrlega algerlega saman. Umræðan var um öryggis- og varnarmál, um viðbúnað, varnarviðbúnað, um samfélagsöryggi og síðan bara áherslu þessa óörugga ástands á aðra þætti sem eru auðvitað svo mikilvægir öllum, en við erum með flokkafókus á Norðurlönd. Síðan er auðvitað alltaf hliðarauga á frið á norðurslóðum, mikilvægi þess, líkt og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir fór hér vel yfir áðan, og er svona lykilatriði í formennskuáætlun okkar núna.

Þetta voru stóru atriðin fyrst. Síðan komu tillögur og ég er ekki auðvitað í neinum færum til að kynna þær hér, þetta á eftir að fara sinn gang innan vinnuhópsins. Við eigum eftir að skila tillögum til forsætisnefndar, eins og ég sagði, sem verður í byrjun apríl. Forsætisnefnd tekur síðan afstöðu og svo er málum vísað eftir atvikum áfram til ríkisstjórna Norðurlanda.

Eftir að þessari umræðu var lokið þá fór fókusinn yfir á loftslagsmál og umhverfismál, sem er að sjálfsögðu gríðarlega mikilvæg umræða líka og mikilvægt að við gleymum þeim áherslum ekki á þessum óróatímum sem við lifum núna. Þetta er að mörgu leyti nátengt. Það er svo sem önnur umræða en auðvitað má rekja stóran hluta þess ófriðar sem ríkir í heiminum til stöðunnar í loftslagsmálum og hvernig við ætlum að bregðast við og hver helsta hættan er. Þar fór töluverður tími í að ræða þau mál, enda er ekki farið mörgum orðum um það heldur í Helsinki-samningnum eins og hann er núna, enda barn síns tíma að því leyti til. Síðan fór umræðan og vinna hópsins yfir í aðra þætti eins og velferðarsamfélagið okkar, fór yfir í menntun og menningu, yfir í tungumálin og annað slíkt, samskipti okkar við t.d. okkar norrænu þingmenn á Evrópuþinginu. Það tengist að ákveðnu leyti öryggis- og varnarmálum þannig að við erum komin býsna langt.

Ég er bókstaflega að renna út á tíma og ég er ekki byrjuð að tala um það sem mig langaði að verja töluverðum tíma í og það er staða vina okkar í Færeyjum, á Grænlandi og Álandseyjum. Þeir hafa mikinn áhuga á að nota þessa endurskoðun til þess að tryggja betra aðgengi sitt að Norðurlandaráði. Við Íslendingar höfum alltaf og munum halda áfram að taka vel í það og styðja það, ekki bara vegna velvildar okkar í garð þessara frændþjóða okkar og skilnings á því hvað það er að vera lítil þjóð, heldur vegna þess til viðbótar að þannig verður Norðurlandaráð og norrænt samstarf enn þá sterkara, með sterkari röddum þessara aðila. Það er hluti af vinnunni og það er frábært að sjá hvað það er mikil samstaða um það. Það ríkja auðvitað samningar milli Dana annars vegar og Færeyja og Grænlands og samningar á milli Finnlands og Álandseyja, en allir þessir aðilar hafa komið gríðarlega sterkir inn. Við höfum náð góðu samtali um þessi mál, ekki allt á sér stað á vinnufundum heldur líka í tveggja manna tali eða tveggja þjóða tali, ef svo má segja. En ég er sannfærð um það að við eigum eftir að sjá góðar og jákvæðar breytingar á Norðurlandasamstarfinu þegar kemur til samningsins. En hitt er síðan að við verðum bara sterkari, Norðurlöndin saman, með betra samstarfi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)