norrænt samstarf 2023.
Virðulegur forseti. Mig langar að þakka kærlega fyrir þessa miklu og góðu umræðu sem hefur skapast hér um skýrslu Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, um starf Norðurlandaráðs á árinu. Það er mjög ánægjulegt að fá fleiri þingmenn með í samtalið, að þetta sé ekki bara Íslandsdeildin sjálf að tala saman, og ég held að það sé mikilvægt. Ég þakka því þingmönnum fyrir að hafa svarað ákalli í fyrri ræðu minni um þetta, að við sýnum alþjóðasamstarfinu áhuga og notum þennan vettvang til að ræða þau mál.
Hér hefur skapast töluverð NATO-umræða sem væntanlega mun halda áfram í lok dags þegar við ræðum NATO-skýrsluna. Ég nefndi hér áðan hvort við ættum að fara að huga að norrænum her og ég ætla að þakka hv. þm. Magnúsi Árna Skjöld Magnússyni fyrir sína ræðu þar sem hann tók saman hvað Norðurlöndin búa yfir í herafla. Þau eru nú þegar farin að vinna mikið saman. Þetta er ekkert rosalega óraunveruleg hugmynd ef maður fer að velta því fyrir sér hvort þetta gæti verið næsta skref. Hún hugnast örugglega ekki öllum en ég væri alveg til í samtal um það.
Vegna þess að líka var komið inn á það hvað væri búið að ræða á síðustu árum — einhver hv. þingmaður nefndi Stoltenberg-skýrsluna og svo skýrslu Björns Bjarnasonar í kjölfarið, ég held að það hafi verið hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson — þá langaði mig að nefna það að við settum norðurslóðir á oddinn og erum með yfirskriftina „Friður og öryggi á norðurslóðum“. Ef maður les Stoltenberg-skýrsluna er einmitt eitt af áhersluatriðunum þar samstarf Norðurlandanna á sviði norðurslóðamála. Þegar alþjóðastofnanir háskóla þessara landa eða slíkt samstarfsnet tók út þá skýrslu fyrir þremur eða fjórum árum síðan þá var eitt af því sem var rauðlitað einn af þeim punktum sem ekki hafði ekki náðst neinn árangur með; samstarf varðandi norðurslóðamálin. Björn Bjarnason benti líka á það í skýrslunni sem hann vann fyrir ráðherranefndina hvort það væri ekki mikilvægt að Norðurlöndin myndu vinna saman á þessum vettvangi. Þess vegna settum við þetta á dagskrá, því að við í Íslandsdeildinni teljum það mikilvægt.
Það er svolítið áhugavert að velta fyrir sér af hverju ekkert hefur hreyfst í samstarfi Norðurlandanna varðandi samstarf á þessum vettvangi. Kannski hafa svörin svolítið komið fram í ræðunum. Það er kannski líka samkeppnin. Hv. þm. Andrés Ingi Jónsson nefndi námugröft á hafsbotni, mál sem norska þingið hefur verið að fjalla um. Ég get bent á að það liggur fyrir fyrirspurn frá grænlenskum þingmanni þar sem verið er að spyrja norsku ríkisstjórnina út í það mál og krefjast svara um hvernig eigi að sinna umhverfisvernd og öðru í tengslum við þetta. En þetta er vissulega stórt mál.
Það er líka rætt um hervæðingu eða hækkað spennustig á norðurslóðum. Þá skulum við líta til þess að fyrir einhverjum árum þá var, sem er gott, fókusinn hjá Norðurskautsráðinu fyrst og fremst á samstarf varðandi umhverfismálin. Norðurskautsráðið á ekki að tala um varnarmál og það var ein ástæðan fyrir því að hægt var að fá alla þessa aðila að borðinu, vegna þess að Rússar eru auðvitað í Norðurskautsráðinu og lönd sem voru ekki í NATO voru það líka. Eins og flestir hér inni vita hefur það ráð núna verið í frosti. Norðmenn tóku við formennsku og þeir urðu svolítið hikandi þegar við Íslendingar settum þetta á dagskrá með yfirskriftinni „Norðurskaut“. Það var töluvert meiri umræða heldur en gengur og gerist um það þegar við lögðum fram okkar formennskuáætlun. Mér finnst það gott því að ég vil gjarnan fá umræðu um þetta og ég vil líka að við séum að ræða á vettvangi Norðurlandaráðs málefni sem allir eru ekkert endilega sammála um, því að ég held að það sé hluti af lýðræðinu og það er það sem við eigum að gera.
Ég þakka kærlega fyrir þessa umræðu og ítreka það sem ég sagði áðan, að það er stefna allra Norðurlandanna að halda norðurslóðum sem lágspennusvæði en ég held að við séum öll raunsæ í því að spennustigið hefur hækkað.
Að lokum langar mig líka að ítreka þakkir til samstarfsráðherrans, hæstv. ráðherra Guðmundar Inga Guðbrandssonar, fyrir samstarfið á þessu ári. Mig langar að þakka samstarfsfélögum mínum, samþingmönnum mínum í Íslandsdeild Norðurlandaráðs, fyrir mjög gott samstarf og æski þess að svo verði áfram á þessu ári þegar við ætlum að standa vaktina í formennskutíð okkar. Mig langar líka að nota tækifærið og þakka okkar góðu starfsmönnum sem vinna fyrir okkur í Íslandsdeildinni. Þar fer fyrir Helgi Þorsteinsson, sem er mikill brunnur upplýsinga og þekkingar, og Hildur Edwald.