154. löggjafarþing — 63. fundur,  1. feb. 2024.

norrænt samstarf 2023.

625. mál
[13:43]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef fylgst með þessari umræðu í þingsal um skýrslu um starf Íslandsdeildar Norðurlandaráðs og langaði aðeins að koma hér inn í lokin. Mér fannst hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir taka umræðuna ágætlega saman og mér fannst hv. þingmaður, sem ég er ekki alltaf alveg sammála öllum áherslum hjá, þó taka ágætlega vel utan um ólík sjónarmið í sinni ræðu og eins hér í lokaræðu sinni. Mig langaði hins vegar að koma hér upp og ítreka það varðandi umræðu um að koma á fót norrænum her, sem ég er algerlega andvíg og tel ekki vera farsælt, að ég myndi vilja sjá áhersluna frekar á það hvað Norðurlöndin og Norðurlandaráð geta gert í samstarfi við það að koma að umræðum og málaleitunum um að koma á friði í heiminum. Almennt séð, þó með undantekningum, held ég að við séum þekkt sem svæði þar sem friður hefur ríkt og við höfum ekki verið mjög árásargjörn í garð annarrar þjóðar. Það tel ég vera gríðarlega mikinn styrk og ég myndi áfram vilja sjá áhersluna þar. Ég átta mig alveg á því að það er líka í takt við mjög margt sem hv. þingmaður hefur sagt en mig langaði að koma því hér að að mér finnst mikilvægt að áherslan verði í þá átt en alls ekki í átt að meiri hernaði.