154. löggjafarþing — 63. fundur,  1. feb. 2024.

norrænt samstarf 2023.

625. mál
[13:45]
Horfa

Frsm. ÍNR (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Mér er kunnugt um afstöðu hv. þingmanns og skil vel að hún vilji koma henni hér á framfæri. Ég ítreka það líka að þegar ég kasta fram hugmyndum um norrænan her er ég hvorki að tala fyrir hönd allrar Íslandsdeildarinnar né Norðurlandaráðs, heldur er þetta mín skoðun og eitthvað sem mér finnst að megi gjarnan ræða. Það er alveg ljóst í okkar formennskuáætlun og í rauninni í áherslum Norðurlandaráðs alls að við viljum vera þekkt fyrir það að vera ríki sem talar fyrir mannréttindum, friðsamlegum lausnum og lýðræði. Þetta er eitt af því sem við leggjum mikla áherslu á þegar við förum sem fulltrúar Norðurlandaráðs t.d. á erlendan vettvang, heimsækjum önnur ríki eða önnur þingmannasamtök. Við munum áfram gera það og það er í rauninni það sem oft hefur verið rætt og við höfum lagt áherslu á, eins og í okkar formennskuáætlun, að við getum komið fram með þennan friðarboðskap. Hæstv. samstarfsráðherra fór ágætlega yfir það áðan hvernig við í formennskutíð okkar í ráðherranefndinni höfum nýtt þann vettvang og höfum mjög margt til málanna að leggja.

Ég vil líka segja að mér finnst umræðan hér á Íslandi um varnarmál vera lítil sem engin. Það kom kannski ágætlega fram í samtali áðan um þetta og ég held að við getum lært mikið af félögum okkar á hinum Norðurlöndunum, að þau séu meðvitaðri um varnarumræðuna og mikilvægi hennar. Ég var með þessar pælingar fyrir töluverðu síðan á þeim tíma þegar ég, kannski í einfeldni minni, átti ekki von á því að við myndum sjá stríð brjótast út í Evrópu og ég hélt að tími svona innrása væri liðinn. Ég hélt að við værum að glíma við öðruvísi ógnir, eins og netárásir eða eitthvað slíkt, (Forseti hringir.) en ekki, eins og Ameríkaninn segir, „boots on the ground“, að hermaður sé kominn inn fyrir landamæri annars lands.