norrænt samstarf 2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni andsvarið og ætla einmitt að nota tækifærið, af því að ég var með punkt hérna áðan sem ég náði ekki að koma inn á í ræðunni minni áðan varðandi mannréttindi og hvað Norðurlandaráð á að tala fyrir. Ég vil nefna sem dæmi að ég var fulltrúi Íslandsdeildar Norðurlandaráðs í BSPC, sem stendur fyrir Baltic Sea Parliamentary Conference. Í þessu eru öll löndin í kringum Eystrasaltið þannig að þarna er Þýskaland og reyndar líka ákveðin fylki í Þýskalandi. Þarna er Pólland og auðvitað Norðurlöndin öll. Svo var Rússland þar og Rússlandi var hent út. Ég hef í tvígang mætt á aðalfundi þessara samtaka og komið fram með breytingartillögur við ályktanirnar þar sem ég hef náð því fram að eitt af því sem þessi ríki eigi að stefna að sé t.d. sjálfsákvörðunarréttur kvenna, eitthvað sem Norðurlöndin eru gjarnan fyrirmynd fyrir. Ég nefni sérstaklega Pólland þar sem við höfum séð gríðarlega afturför í þessum efnum á síðustu árum og umræðuna í kringum öll þau mál. Ég var því mjög stolt af því að hafa fengið það orðalag samþykkt inn í ályktunina. Einnig vorum við sérstaklega að huga að mannréttindum og horfa til minnihlutahópa, og nefndum sérstaklega hinsegin samfélagið. Þetta er eitthvað sem ég held að Norðurlandaráð eigi alltaf að standa fyrir. Þess vegna má líka velta fyrir sér, af því að við vorum aðeins að tala um hvað væri svo að gerast innan Norðurlandanna og var lykkjumálið hryllilega nefnt sem dæmi, og nefna í tengslum við sjálfsákvörðunarrétt kvenna að löggjöf Færeyinga er algerlega í fornöld hvað þetta varðar og vonandi eru þeir að fara að breyta því núna. Þetta hefur oft verið rætt á vettvangi Norðurlandaráðs og þá er stundum svolítil feimni við það að fara beint í eitthvert ríki sem er aðeins öðruvísi. Það var því kannski það sem ég var að segja áðan í ræðu minni, að ég held að mikilvægt sé fyrir okkur þingmenn að geta rætt sem flest málefni á vettvangi Norðurlandaráðs þótt það sé ekki endilega í formi formlegra þingsályktana eða eitthvað slíkt. Nefni ég þá sem dæmi fundinn okkar í næstu viku í Svíþjóð þar sem ég hef óskað eftir umræðu um stöðu skipulagðrar glæpastarfsemi eða glæpagengja þar í landi, (Forseti hringir.) sem ég held að sé t.d. eitthvað sem er mjög mikilvægt fyrir okkur öll á Norðurlöndum að huga sérstaklega að.