Vestnorræna ráðið 2023.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég er kannski svolítið að brýna okkur öll í samskiptum okkar við okkar góðu granna til þess að hlusta eftir þeirra sjónarmiðum og sjá hvernig við getum stutt við það, því að eins og fram kom áðan þá höfum við ávallt staðið með vinum okkar í vestnorrænu löndunum og skiljum mjög vel þeirra baráttu.
En ég hnaut líka um frásögnina frá ársfundinum sem fór fram í Reykjavík og umræðuna um viðskipti og hvernig hægt væri að ýta undir það. Ég þekki það að þegar ég var þarna þá var stöðugt verið að tala um Hoyvíkursamninginn. Þá vildu Færeyingar segja honum upp en ég sé hér í frásögninni að íslenskur þingmaður, hv. þm. Eyjólfur Ármannsson, hafi verið að tala fyrir því að þyrfti að endurnýja þennan samning og gera hann enn stærri og meiri, hann velti fyrir sér dómstólum og öðru. Mig langaði því að heyra ofan í hv. þingmann með það hvort sú umræða sé komin eitthvað lengra á veg og þá kannski ekki síst við Grænland. Ég minni þingheim á að á síðasta kjörtímabili voru unnar mjög góðar skýrslur á vegum utanríkisráðuneytisins og utanríkisráðherra, annars vegar um Færeyjar og mjög löng og stór skýrsla um Grænland og svo líka reyndar um viðskiptatækifæri á norðurslóðum. Það var mikill fókus settur á þessi mál og ég hef trú á því að í þessu felist mörg tækifæri. Ég er algerlega sannfærð um að viðskiptafrelsi okkar Íslendinga hafi hjálpað okkur í sjálfstæðisbaráttu okkar og það að fá hingað inn erlendar fjárfestingar og ég held að það myndi líka gagnast vinum okkar þarna.
Svo sé ég hérna að Vivian Motzfeldt, vinkona mín, sem nú er ráðherra þarna, hafi verið að horfa svolítið á Nordjobb og Nordplus svona til að ýta undir. Þá langar mig einmitt að spyrja hv. þingmann og kannski ýta á það að ég held að það sé mjög mikilvægt að Grænlendingar og Norðurlandaráð, þá í samstarfi, ýti undir möguleika fyrir grænlensk ungmenni og Grænlendinga til taka þátt í norrænu samstarfi, hvort sem það eru ungliðaskipti eða stúdentaskipti eða menningarmálin og annað, þannig að þau upplifi sig sem hluta af Norðurlöndunum.