Vestnorræna ráðið 2023.
Herra forseti. Þetta eru allt mjög mikilvæg atriði sem hv. þingmaður kemur hér inn á. Aukin og greiðari viðskipti milli landanna eru mál sem hafa verið rædd en það hafa ekki verið gerðar neinar breytingar þannig séð. En þetta er eitt af því sem við höfum til að mynda rætt í tengslum við fæðuöryggi og sér í lagi ef við lítum á þetta svæði sem heild. Það er umræða sem hefur ekki verið botnuð eða kominn einhver endapunktur á en ég held að við séum öll sammála um það að sérstaklega ef vel er á málum haldið geti þetta verið til gagns fyrir löndin öll. Og af því að matur er líka menning geti það aukið menningartengsl landanna á milli. Þetta er bara umræða sem er í gangi og ég veit svo sem ekkert hvar endar og í sjálfu sér eru margir angar á henni og skiptir máli hvernig með er farið.
Hitt sem varðar möguleika grænlenska ungmenna til að taka þátt í alls konar norrænu starfi tek ég bara hjartanlega og heils hugar undir með hv. þingmanni. Þar er rekinn núna svona vestnorrænn menntaskóli en hann er með aðsetur í Danmörku og er undir mjög miklum dönskum formerkjum. Það hafa til að mynda sumir færeyskir þingmenn gert athugasemd við og myndu vilja sleppa dönsku áherslunni í því. (Forseti hringir.) En ég held að allt sem við gerum til þess að gera það að verkum að ungmennin okkar (Forseti hringir.) geti kynnst hinum löndunum sé algerlega af hinu góða og styrki enn frekar (Forseti hringir.) okkar samstarf og samvinnu og bræðra- og systralag þessara landa.