Vestnorræna ráðið 2023.
Virðulegi forseti. Mér fannst ekki vera hægt að láta þessa merkilegu umræðu líða án þess að það tæki einhver úr sal til máls um hana og lýsi því að þetta er auðvitað mjög mikilvægt starf og áhugavert. Sú umræða sem spannst hér milli hv. þingmanna um aðild Færeyja og Grænlands að Norðurlandaráði hefur verið lengi í gangi. Ég var stjórnmálabarn á tíunda áratug síðustu aldar og sat af því tilefni þrjú Norðurlandaráðsþing sem áheyrnarfulltrúi ungra jafnaðarmanna og þá var verið að ræða þetta. Það voru mjög hatrammar umræður um nákvæmlega þetta mál og ég sé að það hefur ekkert breyst þessi 30 ár sem síðan eru liðin.
Svo er líka áhugavert að velta fyrir sér þessu sem hv. þingmenn voru að ræða hér áðan um tungumálið. Ég lenti í því að sitja svona fund þessa ágæta þingmannaráðs, ekki reyndar sem þingmaður heldur sem fræðimaður á Húsavík einhvern tímann í byrjun þessarar aldar, og var beðinn um að koma þangað og lýsa Evrópusambandinu fyrir þátttakendum ef þeir hefðu einhvern áhuga á að kynna sér það. Ég talaði náttúrlega bara sænsku af því að það tungumál er mér tamara en danskan en ég myndi halda að við Íslendingar værum mun lélegri í dönsku en hinir þátttakendurnir í þessu samstarfi. Þannig að það er auðvitað gott að heyra að það sé einhvern veginn verið að bregðast við því því að annars endar þetta alltaf þannig að þeir sem taka þátt í þessu starfi eru þeir sem tala dönsku. Það er ekki alveg nógu góð krítería til að taka þátt í svona áhugaverðu og skemmtilegu samstarfi við okkar næstu nágranna og bara ekki málefnaleg ástæða fyrir því.
Ég man líka að þar var einmitt umræða um þennan Hoyvíkursamning, sem er einhvers konar fríverslunarsamningur milli Íslands og Færeyja, og hvort Grænland ætlaði að stíga inn í hann. Það rifjaðist upp fyrir mér þegar ég var að hlusta á ágæta ræðu hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar, sem situr í stólnum fyrir aftan mig núna, og hann var að tala um nýlendustefnu dagsins í dag, að grænlenskur fulltrúi á þessum fundi sem ég sat þarna, stóð upp og sagði að Grænlendingar hefðu engan áhuga á því að skipta út Dönum fyrir Íslendinga sem nýlenduherra á Grænlandi. Þeir sáu fyrir sér, þetta var á þessum bóluárunum þar sem Íslendingar voru að kaupa upp meira og minna allar verslanir í Kaupmannahöfn og víðar, að Íslendingar myndu fljótlega koma með peningana sína þangað og kaupa upp allar auðlindir Grænlendinga. Það er því að ýmsu að hyggja í þessum efnum og gott að þessi samstarfsvettvangur sé til staðar, að við höfum þarna tækifæri til þess að ræða við okkar nánustu nágranna og áhugavert fyrir okkur að vera í þeirri stöðu að vera stærsti aðilinn í þessu samstarfi. Auðvitað búum við líka að því sem veitir okkur ákveðna sérstöðu og er ástæðan fyrir því að við erum aðilar að Norðurlandaráði en ekki Færeyjar og Grænland, og það er hið svokallaða fullveldi. Fullveldi er náttúrlega, ja, ég veit ekki, það er kannski best að líkja því við kennitölu. Ef þú ert fullvalda ríki þá ertu með kennitölu á alþjóðavettvangi en þú ert það ekki ef þú ert ekki með kennitölu og þessu í tilfelli er kennitala Danmerkur og Færeyja í Kaupmannahöfn. Þannig er það. Það er ekki búið að leysa úr því en mér finnst persónulega mikilvægt að þrýsta á um það að þessi lönd, þessi góðu vinaríki okkar, fái sem sterkasta rödd inn í samstarfið okkar hér á norðurslóðum og á Norðurlöndum.
Það er líka ástæða til að nefna það í þessu samhengi að við Íslendingar erum að mörgu leyti ákaflega lík grönnum okkar í Færeyjum. Við tölum svipað tungumál, svona nánast sama tungumálið, og eigum í miklum tengslum við Færeyjar að mörgu leyti, menningarlega og sögulega. En því miður er ekki það sama hægt að segja um Grænland og það er mikil synd því að ég held að við getum lært mikið af þeim og höfum margt þangað að sækja og að það þurfi að gera sérstakt átak í því að styrkja tengslin á milli okkar og Grænlands, alveg burt séð frá því hvort Hoyvíkursamningurinn verður útvíkkaður til þess ríkis. Sem dæmi má nefna að oft er um dálítið erfiðar og dýrar samgöngur milli Grænlands og Íslands að ræða og í sumum tilfellum, ef fólk þarf að treysta á það að vera komið þangað á einhverjum ákveðnum tíma, er þægilegast og jafnvel ódýrast að fljúga í gegnum Kaupmannahöfn. Það er bara ekki nógu gott og það má styrkja og það væri gott ef við hér á þessum stað getum þrýst á að það verði hægt með einhverjum hætti.
Að lokum, herra forseti, langar mig bara til að hvetja til þess að það verði haldið áfram að þróa þetta góða starf. Auðvitað er það svo að fyrir okkur Íslendinga er Norðurlandasamstarfið sem slíkt mikilvægara að mörgu leyti, en þetta er líka svo fallegt og skemmtilegt starf sem þarna á sér stað og það endurspeglast í þeim viðfangsefnum sem þetta samstarf er að fást við og þeim tillögum sem góðu heilli skila sér frá þessum fundum og hingað inn í þessa sali.