154. löggjafarþing — 63. fundur,  1. feb. 2024.

Vestnorræna ráðið 2023.

608. mál
[14:24]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég er sammála því að ég held að það sé brýnt að styrkja þessa rödd. Það væri líka heppilegt fyrir þau okkar sem búa á þessu svæði hérna að sú rödd heyrðist því að þau viðfangsefni sem við eigum við að etja hér á norðurslóðum eru kannski önnur en fara hæst við Eyrarsundið. Það er hins vegar annað varðandi tungumálakunnáttu og tungumál sem notað er á svona fundum. Það er auðvelt að sjá fyrir sér að ef danskan myndi víkja sem opinbert tungumál svona samstarfs þá myndi, þrátt fyrir góðan vilja til að halda úti túlkaþjónustu og allt það, enskan bara taka þar við og það er í sjálfu sér þróun sem við höfum verið að sjá á vettvangi Norðurlandanna.

Mig langar að nefna það í lok þessarar umræðu að kannski fallegasta augnablikið sem ég upplifði á fundi þessa þingmannahóps á sínum tíma, fyrir utan það náttúrlega að fara í hvalaskoðun með mjög grimmum hvalveiðisinnum þar sem snætt var grillað hvalkjöt á þilfari hvalaskoðunarskipsins, var að hlusta á Jonathan Motzfeldt spila á lítið kirkjuorgel í kirkju einhvers staðar í Þingeyjarsveit. Það var mjög eftirminnilegt augnablik.