154. löggjafarþing — 63. fundur,  1. feb. 2024.

Fríverslunarsamtök Evrópu og Evrópska efnahagssvæðið 2023.

656. mál
[15:21]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda, hv. þm. Ingibjörgu Isaksen, enn fyrir þessa ágætu spurningu og mér er ljúft og skylt að svara henni. Í stefnuskrá Samfylkingarinnar segir: Samfylkingin stefnir að fullri aðild að Evrópusambandinu með upptöku evru að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Það hefur ekkert breyst í þeim efnum og engin ákvörðun verið tekin á vettvangi Samfylkingarinnar sem breytir þeirri eindregnu skoðun flokksins og landsfunda hans að það beri að stefna að því að láta reyna á aðildarsamninga við Evrópusambandið. Það er hins vegar hárrétt sem þingmaðurinn bendir á, Evrópumál hafa oft verið ofar á baugi í málflutningi Samfylkingarinnar en þau eru nákvæmlega í dag. Við erum að einbeita okkur að öðrum málum í dag sem eru ákaflega brýn; atvinnumál, kjaramál, heilbrigðismál og önnur slík. Ég styð eindregið þann málflutning en tek mér það bessaleyfi að tala um Evrópumál líka vegna þess að það er stefna flokksins og það er mál sem ég hef haft áhuga á ákaflega lengi og vil endilega að sé rætt um hér í þessum sal.