Fríverslunarsamtök Evrópu og Evrópska efnahagssvæðið 2023.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans svar og tek alveg undir að umræðan er afar mikilvæg og þörf og einmitt að mismunandi skoðunum sé komið á framfæri. Við finnum það líka alveg að umræðan um Evrópusambandið tengist stöðu efnahagsmála í landinu hverju sinni. Þegar vextir og verðbólga eru með þeim hætti sem hefur verið undanfarna mánuði, þótt verðbólgan fari sem betur fer lækkandi, er farið í umræðuna í kringum samningaviðræður og inngöngu í Evrópusambandið. Svo þegar staðan er góð er það ekki mikið rætt.
Það sem mér finnst umhugsunarvert líka er að ég heyrði hv. þingmann tala um samtal, að það sé hlustað á áhyggjur þjóða innan Evrópusambandsins, að hafa rödd við borðið, vera til staðar við ákvarðanatökuna o.fl. Það sem mér finnst áhugavert er að í starfi okkar EFTA-nefndarinnar þá höfum við farið og átt mikið samtal og gott við þingmenn Evrópusambandsins um hin ýmsu mál til þess að gæta hagsmuna Íslands og við höfum rödd þar, alveg klárlega, og tengingar. En þar hafa alveg þó nokkrir þingmenn frá mismunandi þjóðum komið til mín, ég veit ekki hvort þeir hafa komið til annarra þingmanna í Íslandsdeildinni, og varað við inngöngu í Evrópusambandið. Það er svolítið áhugavert þar sem þetta eru klárlega þingmenn sinnar þjóðar þarna inni en þetta er vegna þess að þeir vilja meina að svona lítil þjóð hafi ekkert vægi. Eins og hv. þingmaður benti á áðan eru alveg litlar þjóðir þarna, einhver smáríki, en ekkert eins og Ísland og af 704 eða 706 þingmönnum Evrópusambandsins myndum við hafa sex hugsanlega.
Mig langar því aðeins að forvitnast varðandi hagsmunagæsluna, hvort henni sé betur komið innan Evrópusambandsins eða bara hreinlega með EES-samningnum sem er gríðarlega sterkur. Á fundum okkar EFTA-nefndarinnar hefur komið skýrt fram að Evrópusambandið myndi aldrei gera slíkan samning aftur eins og var gerður á sínum tíma við Ísland varðandi EES (Forseti hringir.) heldur yrði hann í raun í smærri bitum og ekki jafn hagkvæmum fyrir Ísland. (Forseti hringir.) Þannig að ég spyr hv. þingmann: Er Samfylkingin reiðubúin til þess (Forseti hringir.) að sleppa EES-samningnum og öllu sem því fylgir og valdi þingsins til að taka ákvarðanir varðandi það til að ganga í Evrópusambandið?