Fríverslunarsamtök Evrópu og Evrópska efnahagssvæðið 2023.
Hæstv. forseti. Ég þakka kærlega fyrir þessa skemmtilegu spurningu. Ég held að mér myndi nú reyndar ekki endast dagurinn til að svara henni algerlega fyllilega ef ég hefði tíma til þess en ég skal samt gera atlögu að því á þessari einu mínútu og fjörutíu og fimm sekúndum sem ég á eftir. Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að það eru mismunandi skoðanir innan Evrópusambandsins á Evrópusambandinu og á Evrópuþinginu sitja fjöldamargir þingmenn sem eru ekki hrifnir af Evrópusambandinu og vilja jafnvel að sínar þjóðir gangi út úr því. Það er bara sjálfsagt mál að fólk hafi ýmsar skoðanir á svona samstarfi. Evrópusambandið er vettvangur pólitískra skoðanaskipta af því tagi og þar fá slíkar raddir að heyrast og það er auðvitað mjög mikilvægt. Við sjáum hins vegar að útganga t.d. Breta, þó svo að þar hafi verið meiri hluti fyrir henni í bæði þjóðaratkvæðagreiðslu og annars staðar, hefur ekki verið mjög hagfelld þeim.
Varðandi áhrif smáríkja innan Evrópusambandsins þá lýsir hv. þingmaður því ágætlega að innan ykkar góða samstarfs á vettvangi þessarar nefndar sem skýrslan var flutt um hérna áðan þá hafið þið leið til þess að koma ykkar sjónarmiðum á framfæri innan Evrópusambandsins. Munurinn á því að vera með EES-samninginn annars vegar og því að vera í Evrópusambandinu hins vegar er þó sá að jú, við erum með sama fjórfrelsið og við erum í Schengen o.s.frv. og við erum að taka þátt í þessu starfi en við sitjum þó alla vega við borðin þar sem verið er að ræða ákvarðanirnar í stað þess að þurfa að koma bakdyramegin og biðja þingmenn vinveittra þjóða að taka upp okkar erindi, vinsamlegast. Við sitjum við borðið. Í því, (Forseti hringir.) eins og hv. þm. Ingibjörg Isaksen veit fullvel, felast áhrif og geta jafnvel falist völd.