154. löggjafarþing — 63. fundur,  1. feb. 2024.

Fríverslunarsamtök Evrópu og Evrópska efnahagssvæðið 2023.

656. mál
[15:27]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Frú forseti. Ég vil þakka þessa umræðu, hún er bara talsvert áhugaverð. Ég ætla að grípa orðið þar sem því var sleppt hérna, um það að hafa áhrif og vera við borðið. Það er eitt af því sem ríkisstjórnin hefur einmitt gert. Við erum með starfsfólk frá öllum ráðuneytum starfandi úti núna, það var ekki þannig, til þess einmitt að koma að borðinu og láta ekki Norðmenn eða einhverja aðra stjórnast í því hvað hentar íslenskri þjóð. Það er gríðarlega mikilvægt og það er starf sem ég hef líka talað um að við þurfum að efla og gera jafnvel enn betur því að það er mismunandi álag eins og gengur og gerist í þeim gerðum sem fyrir þinginu liggja á hverjum tíma. Oft er meira álag á kannski fulltrúa frá velferðarráðuneytinu eða á fulltrúa úr fjármálaráðuneytinu en úr einhverju öðru ráðuneyti. Ég tel að það sé mikilvægt að við höldum aðeins áfram og styðjum við það starf en við erum við borðið mun meira núna heldur en við vorum áður. Ég er búin að sitja í þessari nefnd í dálítinn tíma og ég tel að hún búi yfir miklum tækifærum til þess að hafa áhrif á þá samninga sem gerðir eru og er kannski að einhverju leyti rakið hér, líka til þess að halda okkur inni í heimsmálaumræðunni. Hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson nefndi einmitt áðan mál sem við erum að fjalla um og hann var framsögumaður þess máls þegar við vorum á fundinum í mars í Strassborg þar sem var verið að ræða löggjöfina um gervigreind, var það ekki? (Gripið fram í.) Öruggar tengingar, já. Og svo það sem hann ræddi hér um gervigreindina. Þetta gefur okkur enn þá meira tækifæri til að geta komið að borðinu og haft áhrif.

Ég finn fyrir því bara á þessum árum sem ég hef verið í nefndinni að við höfum öflugri rödd heldur en við höfðum bara þegar ég byrjaði á þingi fyrir að verða 11 árum síðan. Mér finnst það hafa breyst. Það er auðvitað líka breyting á hópnum, þ.e. EFTA- og EES-hópnum. Það eru líka breytingar í þingmannahóp Evrópuþingsins, þó ekki eins miklar og hafa kannski verið hjá okkur. Maður sér líka hvað það skiptir máli að fólk öðlist reynslu. Við kvöddum í fyrra norskan þingmann sem hafði verið í yfir 20 ár í EFTA-nefndinni fyrir hönd Noregs og bjó að gríðarlegri reynslu og gat miðlað miklu til okkar hinna og líka um hvernig hlutirnir hafa þróast. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli. Ég tek undir það að nærveran og að hitta fólk, eiga þessi kaffibollasamskipti, borða saman, eiga þessi óformlegu samskipti skiptir líka svo miklu máli og það gerist auðvitað ekkert í gegnum netið. En það eru líka fundir í gegnum netið, svo því sé nú haldið til haga fyrir alþjóð.

Hér hefur verið farið yfir það sem á daga þessarar nefndar dreif að einhverju leyti. Ég nefni fundinn í fyrra sem við áttum einmitt á svipuðum tíma og er fyrirætlaður núna, í febrúar, þar sem var verið að ræða þessa miklu löggjöf Bandaríkjanna um græn orkuskipti og stuðning við grænan iðnað varðandi hreinorkuskiptin. Þetta er kannski í fyrsta sinn sem þeir eru að leggja áherslu á slíkt með þessum hætti. Evrópusambandið hefur haft áhyggjur af því, vegna þess að það eru svo miklar skattaívilnanir, að fyrirtæki úr Evrópu flytji sig hreinlega til Bandaríkjanna. Þetta er eitt af því sem við erum auðvitað að ræða, hvernig hægt er að bregðast við. Það er ekki bara gert á Evrópuþinginu. Sú umræða flyst líka að hluta til yfir í EFTA og það finnst mér vera líka eitthvað sem heldur manni á tánum í mjög mörgu sem maður er ekki endilega að velta fyrir sér varðandi Ameríku. Mér fannst þetta alla vega vera mjög athyglisverður fundur hvað þetta varðaði. Og af því að við erum svo oft að glíma við samkeppniseftirlit hérna heima þá var verið að velta fyrir sér hvernig samkeppnisreglurnar eru einmitt en vernda um leið innri markaðinn því það skiptir jú máli líka.

Svo var mikið talað um á árinu, eðli máls samkvæmt, stuðning við Úkraínu, fyrirkomulag hans, inngöngu þeirra í Evrópusambandið. Það var tekið líka fyrir hjá okkur að einhverju leyti, hvernig við ætluðum að viðhalda þessum stuðningi. Það var líka talað um, kannski einmitt í ljósi stríðsins, aðgengi að hrávöru. Það var mikið fjallað um raforkumarkaðinn og að Evrópa þyrfti að vera mun sjálfbærari gagnvart slíku heldur en hún kannski er og fékk svona fast í andlitið í kjölfar þessa stríðs. Þetta var eitt af því sem tók talsverðan tíma hjá okkur. Mér finnst mikilvægt að maður sé partur af þessu samtali og að heyra líka hvernig þetta kemur við hin löndin sem okkur finnst gjarnan vera mjög lík okkur. En á sumum sviðum eru þau það kannski ekki alveg.

Ég vil líka halda því til haga, af því að EFTA hefur haldið dálítið vel utan um það, að þegar ESB er að gera nýja fríverslunarsamninga við önnur lönd þá höfum við í EFTA þurft að berjast dálítið fyrir því að fá sambærilega samninga jafnvel uppfærða. Margt af því hefur tekið talsverðan tíma. Ég man t.d. það að nútímavæða þessa samninga, taka tillit til hinna ýmsu atriða sem okkur þykja sjálfsögð, t.d. um nauðungarvinnu og annað slíkt. Það er ekkert langt síðan að það fór að koma inn í samninga sem manni finnst eiginlega vera sjálfsagt en var talsverð tregða við að setja slíkar setningar inn í samningana. Það er líka eitt af því sem mér finnst að við höfum áorkað því að við fundum jú með ráðherrum þessara landa líka reglulega, tvisvar sinnum á ári, og þar reynum við að beita okkur sameiginlega fyrir ákveðnum sameiginlegum aðgerðum sem við viljum að löndin leggi áherslu á. Það er eitt af því sem mér hefur fundist vera breyta í því sem verið hefur. Ég ávarpaði á fundinum okkar í mars í fyrra einmitt nauðungarvinnuna og að auka ábyrgð fyrirtækja þegar horft væri á aðfangakeðjuna frá A til Ö, að til þessa væri horft. Ég hef t.d. áhyggjur af því við erum að reyna að gera samninga við ýmis lönd sem ég held að geti ekki uppfyllt þetta, sérstaklega þegar kemur að þriðju ríkjunum. Þá getur þetta skipt talsverðu máli.

Ég vil líka segja að ég var ánægð með það að stjórn og stjórnarandstaða stóð þétt saman og við stóðum öll saman þegar kom að áhrifum varðandi flugið og lýstum öll yfir stuðningi við að það væri tekið tillit til Íslands, þ.e. til framlengingarinnar.

Mér hefur fundist þetta vera um margt mjög áhugavert og maður hefur lært ýmislegt af því að starfa í þessari nefnd. Sannarlega þarf að gera betur víða. Það sem er kannski helst að, ef svo má segja, er þegar verið er að gera samninga og setja inn einhvers konar setningar um áform sem við viljum auðvitað að sé farið eftir. Þá horfist maður auðvitað í augu við það að það er ekki hægt að fylgja því öllu saman eftir svo nægjanlegt sé. Það er kannski akkillesarhællinn. Þegar búið er að gera samning eins og t.d. varðandi nauðungarvinnu, að það eigi ekki að gera samning við slík ríki eða þá að þau skuldbindi sig til að fylgja því, þá stöndum við frammi fyrir því að við ýmist getum ekki sannreynt það eða því er ekki fylgt nægilega vel eftir að mínu mati.