Fríverslunarsamtök Evrópu og Evrópska efnahagssvæðið 2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka kærlega fyrir góða ræðu og upplýsandi frá hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur sem fyllir betur út í þá mynd sem er að teiknast upp í dag af starfi þessa þingmannahóps, sem er mjög mikilvægt. Ég verð að koma hingað upp líka til þess að lýsa yfir ánægju minni með að það er aukin áhersla af hálfu íslenskra stjórnvalda á aukna viðveru í Brussel við hagsmunagæslu fyrir ríkið og þjóðina. Mér fannst líka gaman að hlusta á hvernig hv. þingmaður lýsti vinnunni í þessum hópi og hvernig umræður fara þar fram um ýmsa þætti þessa samstarfs, m.a. um inngöngu Úkraínu í Evrópusambandið. Það snertir auðvitað okkur vegna þess að við erum inni á þessu svæði. Ég fór nú áðan ágætlega í gegnum sögu Evrópusamrunans hér á Íslandi og þær hugmyndir sem mættu Gylfa Þ. Gíslasyni þegar hann fór í sína höfuðborgaferð árið 1961 um að við gerðumst aukaaðilar að Efnahagsbandalagi Evrópu eins og það hét á þeim tíma. Það er nákvæmlega það sem við erum. Við erum aukaaðilar að Evrópusambandinu. Þess vegna langar mig til að spyrja hv. þingmann, af því að hún er búin að lýsa vel andrúmsloftinu í þessu samstarfi: Er þetta ekki félagsskapur sem við sem fullvalda þjóð eigum heima í?