154. löggjafarþing — 63. fundur,  1. feb. 2024.

Fríverslunarsamtök Evrópu og Evrópska efnahagssvæðið 2023.

656. mál
[15:44]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alltaf gaman að vera í svona spekúlasjónum, hvað ef? Auðvitað vitum við það svo sem ekkert en samstarf styrkir alltaf, ég held að það sé af hinu góða almennt og ekki síst hjá löndum sem eru um margt lík en um leið ólík, eins og ég sagði áðan með Norðurlöndin. Við stóluðum rosalega mikið á Noreg í þessu EFTA-samstarfi mjög lengi. Þeirra fulltrúar skrunuðu dálítið í gegnum það sem átti að koma hér. Noregur er bara miklu stærra ríki og hefur í sjálfu sér að mörgu leyti aðra hagsmuni heldur en við. Það kom fram í máli frummælanda hér að við eigum ágætissamtöl við þingmenn Evrópusambandsins og við höfum fundað reglulega með þeim til að heyra hvað er efst á baugi beint frá þeim, það er líka kostur að geta verið óbeint í þessu sambandi og án þess að vera skuldbundinn því. Við þekkjum það bæði að það eru auðlindamálin sem standa helst í þjóðum sem ekki hafa viljað ganga inn í Evrópusambandið. Það eru landbúnaðarmálin sem maður heyrir að eru slík mál. Þegar maður horfir núna á mótmælin í Frakklandi hjá bændum vegna landbúnaðarins þá hverfur dálítið sú mýta sem haldið hefur verið fram mjög lengi að allir bændur séu svo glaðir eftir að löndin gengu í Evrópusambandið af því að styrkjaumhverfið og allt þetta sé svo frábært. Það er nú dálítið brogað að leggja það þannig upp. Það er líka einföldun að halda því fram að þarna sé bara verið að deila um olíukostnað, það kom fram bara síðast í morgun að það er margt annað. Ég er alla vega enn þá dálítið inni í mér varðandi það að ganga í Evrópusambandið eins og staðan er í dag. Um myntina ætla ég hins vegar ekkert að fara sérstaklega að tjá mig.