154. löggjafarþing — 63. fundur,  1. feb. 2024.

Fríverslunarsamtök Evrópu og Evrópska efnahagssvæðið 2023.

656. mál
[15:59]
Horfa

Frsm. ÞEFTA (Ingibjörg Isaksen) (F):

Virðulegi forseti. Mig langaði bara að koma hérna í lok umræðunnar og þakka hv. þingmönnum fyrir þátttökuna. Þetta er búið að vera upplýsandi og skemmtileg umræða. Oft á tíðum þegar maður er flutningsmaður einhverrar skýrslu þá er maður kannski ekki nægilega duglegur að koma einmitt inn á þetta mannlega og hvernig starfið gengur fyrir sig, en hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir fór mjög vel yfir það og kann ég henni bestu þakkir fyrir það. Það er nefnilega ansi margt sem á sér stað á þessum vettvangi og það er ekki einungis hagsmunagæsla fyrir Ísland heldur er þetta líka einmitt tengingar og samstarf og samvinna, mikilvæg tenging við þingmenn Evrópusambandsins eins og hefur komið fram, mikilvæg tenging við þingmenn EFTA-þjóðanna. Við sjáum það að t.d. samstarfið við Liechtenstein, Sviss og Noreg er orðið töluvert betra og við erum dugleg að spyrja hvert annað hvernig hlutirnir eru hjá þeim og læra af hvert öðru og miðla upplýsingum sem er einmitt afar mikilvægt því að við hér á Íslandi þurfum ekki alltaf að vera að finna upp hjólið heldur einmitt að nýta það sem vel hefur tekist. Það er afar mikilvægt.

Um leið vil ég nefna það í lokin að það sem mér finnst líka mikils um vert er að samstarf okkar þingmanna sem erum í Íslandsdeildinni er mjög gott og við vinnum í rauninni þvert á flokka. Þarna eru ekki einhverjar pólitískar línur sem stýra ferðinni heldur vinnum við sem ein heild til að gæta hagsmuna Íslands. Það er afar mikilvægt og mér þykir vænt um það og vil þakka fyrir það. Þetta eru bara mjög góðar umræður og ég held að við förum ágætlega vel nestuð úr þessari umræðu inn í starfið og m.a. næstu ferð nefndarinnar sem er í næstu viku.