NATO-þingið 2023.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir að fara skilmerkilega yfir skýrslu NATO. Ég kom þarna inn sem fulltrúi, var áður varamaður ekki alls fyrir löngu. Þar af leiðandi hef ég fengið töluverða innsýn inn í starfið á undanförnum mánuðum sem er auðvitað gríðarlega mikilvægt fyrir okkur sem aðildarríki að NATO. Svo ber við að öryggisástandið í Evrópu hefur svo sannarlega versnað á undanförnum misserum, auðvitað með innrás Rússa í Úkraínu en einnig sjáum við alls kyns annars konar ógnir sem við erum að beina sjónum okkar í auknum mæli að á undanförnum árum. Ber þar kannski fyrst að nefna netógnina en ekki síður bara undirbúning undir það ef illa fer. Það er eitthvað sem þjóðaröryggisráð hefur verið að taka til sín varðandi áfallaþol þjóðarinnar ef kæmi m.a. til stríðsátaka sem hefðu á okkur áhrif.
Vissulega hefur innrásin í Úkraínu haft mikil áhrif á okkur og við verðum að standa með Úkraínu áfram eins og við höfum gert. Fyrir vikið hefur orðið líflegri umræða um utanríkismál og ekki síst varnarmál á undanförnum mánuðum en hún hefur legið í dvala í langan tíma. Hér hafa þingmenn og ráðherrar tekið virkan þátt í þeirri umræðu. Það sem mér er efst í huga er sú spurning hvort við séum að gera nóg og hvort við séum að undirbúa okkur nóg. Þá vil ég bara koma með beina spurningu til þingmannsins og (Forseti hringir.) reyna að vera stuttorður: Nú hafa yfirmenn herja bæði Noregs og Svíþjóðar nefnt (Forseti hringir.) að þær þjóðir þurfi að undirbúa sig betur ef til stríðsátaka kæmi. Þurfum við ekki að taka þetta til okkar, hv. þingmaður?