NATO-þingið 2023.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Friðriki Friðrikssyni fyrir andsvarið. Það er náttúrlega mjög merkilegt að fylgjast með umræðunni á Norðurlöndum og bara það sem hefur verið að koma frá Svíþjóð og Noregi á þessu ári og reyndar bara í síðustu viku, frá æðstu mönnum herafla þessara ríkja, okkar nánustu vinaþjóða, um nákvæmlega þetta, að nú sé kominn tími til að viðkomandi þjóðir og stjórnkerfi vakni og fari að hafa það í huga að það þurfi að undirbúa það ef illa fer í Evrópu og á þessu svæði.
Auðvitað þurfum við eins og aðrar þjóðir að hafa þetta í huga. Ég reikna með að á vettvangi þjóðaröryggisráðs sé eitthvað um þetta rætt. Ég vil meina að það hafi lifnað verulega yfir þessari umræðu að mörgu leyti á undanförnum fáum misserum. Við kláruðum hér þjóðaröryggisstefnu og greiddum atkvæði um hana í þingsal í febrúar í fyrra, fyrir ári síðan. Þar er einmitt tekið aðeins öðruvísi á þessu en í fyrstu þjóðaröryggisstefnunni sem var samþykkt í apríl eða mars 2016. Auðvitað þurfum við að huga að þessu og það kemur fram í þeirri þjóðaröryggisstefnu sem við samþykktum í fyrra.
Netógnin, ég var að skrifa einhverjar greinar fyrir einhverjum þrem, fjórum árum. Það var nú ekki mikill áhugi á þessum málum þá en það er bara það sem kemur út úr vinnu NATO-þingsins. Mér hefur oft fundist umræðan þar vera þrem, fjórum, fimm árum á undan því sem gerist hérna heima. Við þurfum kannski að stytta líka svolítið í þeirri umræðu hérna heima við. Það er enginn að tala um að hér sé endilega að skella á stríð einn, tveir og þrír, en við þurfum svo sannarlega að vera undirbúin. (Forseti hringir.) Ég held að sú umræða hafi skánað mikið á undanförnum misserum.