NATO-þingið 2023.
Frú forseti. Það er kannski ekki hægt að bæta miklu við spurninguna svo að hv. þingmaður hafi þá tíma til að svara dýpra með lýðræðið. Auðvitað er það þannig að innan NATO hefur verið góð umræða um það inn á milli, í stjórnmálanefndinni og í vísinda- og tækninefndinni, a.m.k. hefur öðru hvoru komið upp umræða um þessi mál milli þingmanna og ráðherra, sérstaklega í Tyrklandi og Ungverjalandi.
Ég er svo sem ekki búinn að fylgjast með fréttum í dag, frú forseti, en í dag átti að vera stór fundur í Evrópusambandinu í Brussel um fjárveitingar til Úkraínu í þessari baráttu en ég hef því miður ekki séð neinar fréttir í dag. Það er þáttur. Svo þekkjum við að verið er að bíða eftir sams konar fjármagni frá Bandaríkjunum.
Það er náttúrlega þetta með lýðræðið, að það er bara ekkert sjálfsagt og ég held að það sé kannski eitthvað sem við þurfum að hafa virkilega í huga. Það var það sem maður lærði á þessum fundi Tyrklandi þegar einhver virtur háskólaprófessor sagði að þetta væri tiltölulega ungt hugtak og reynsla, hún væri ekki margra áratuga gömul eins og við þekkjum það í dag í vestræna heiminum. Það hefðu liðið þúsundir ára þar á undan þar sem ekki hefði verið lýðræði. Þetta væri eitthvað sem væri virkilega mikilvægt að verja, það væri bara ekkert sjálfsagt við það og það þyrfti að hafa fyrir því. Það er m.a. það sem maður hefur lært svolítið í þessu; að virða það.
Ég ætla þá að gefa hv. þingmanni annað andsvarið til að svara fyrri spurningu.