varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um að Jódís Skúladóttir, 10. þm. Norðaust., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því tekur Kári Gautason sæti á Alþingi í dag en hann er 2. varamaður á lista flokksins í kjördæminu og víkur þá 3. maður á lista, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, af þingi, en 1. varamaður hefur boðað forföll.
Einnig hafa borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Bryndís Haraldsdóttir og Teitur Björn Einarsson verði fjarverandi á næstunni. Sömuleiðis hafa borist bréf frá Oddnýju G. Harðardóttur og Þórunni Sveinbjarnardóttur um að þær verði fjarverandi á næstunni.
Í dag taka því sæti á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1. varamaður á lista í Suðvesturkjördæmi, Sigþrúður Ármann, og 2. varamaður á lista í Norðvesturkjördæmi, Guðrún Sigríður Ágústsdóttir, en 1. varamaður hefur boðað forföll.
Þá taka sæti í dag fyrir Samfylkinguna 3. varamaður á lista í Suðurkjördæmi, Inger Erla Thomsen, en 1. og 2. varamaður hafa boðað forföll, og 1. varamaður á lista í Suðvesturkjördæmi, Guðmundur Andri Thorsson.
Kári Gautason, Sigþrúður Ármann og Guðmundur Andri Thorsson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.