ákvörðun um frystingu fjármuna til UNRWA.
Herra forseti. Ég þakka ráðherra fyrir svörin. Það er gott að þetta er ekki endanleg ákvörðun en það er mjög mikilvægt að það sé skýrt mjög fljótt að það verði undið ofan af henni. En það er ekki einungis að ríkisstjórnin sé ósamstiga í utanríkismálum, hún gefur líka misvísandi skilaboð. Þann 12. desember sagði utanríkisráðherra að fjölskyldusameiningar Palestínumanna væru í forgangi hjá Útlendingastofnun en í viðtali við dómsmálaráðherra þann 3. febrúar kom fram að engin afstaða hafi verið tekin til málsins.
Hæstv. forsætisráðherra. Það er einfaldlega ekki mikil mannúð sem felst í því að halda fólki sem er á barmi örvæntingar í óvissu með misvísandi skilaboðum. Getur hæstv. ráðherra upplýst mig um það hvort og þá hvernig íslensk stjórnvöld ætla að beita sér og aðstoða fólk við að komast frá Gaza? Hafa stjórnvöld verið í samskiptum við hin Norðurlöndin og kannað möguleika á samvinnu við þau?