154. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2024.

ákvörðun um frystingu fjármuna til UNRWA.

[15:11]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég vil segja það um þessi mál að það er alveg hárrétt sem kom fram að Útlendingastofnun forgangsraðaði þessum umsóknum um fjölskyldusameiningar og um það hefur ekki verið deilt og þær hafa verið afgreiddar. Ég vil líka segja það hér að það hefur verið samtal milli Íslands og Norðurlandanna. Það verður að segjast eins og er að ég hef sjálf gerst ónákvæm í mínum svörum eins og ég hef bent á eftir á, þ.e. fyrst fékk ég þær upplýsingar að fyrst og fremst væri verið að aðstoða ríkisborgara. Síðar kom það fram að það væri einnig verið að aðstoða dvalarleyfishafa og fyrst og fremst þá dvalarleyfishafa sem áður hefðu búið í löndunum, en það er líka um fleiri dvalarleyfishafa að ræða. Þannig að það hefur verið samtal, en það hefur ekki verið samvinna milli allra Norðurlanda á þessu svæði, við höfum ekki verið aðilar að henni en það hefur verið samvinna milli einstakra Norðurlanda. En mér finnst rétt að benda á að þar hafa Noregur og Svíþjóð aðstoðað umtalsverðan fjölda en Danmörk og Finnland langtum færri. (Forseti hringir.) Þetta var nú um þetta og kannski ekki vanþörf á að reyna að skýra þá upplýsingaóreiðu sem hefur einkennt þessi mál. (Forseti hringir.) En ég vil bara taka undir með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að þetta liggi fyrir sem fyrst, (Forseti hringir.) hvað við getum gert til að aðstoða þetta fólk sem hér um ræðir því það hefur öðlast rétt til að koma hingað.

(Forseti (BÁ): Forseti vill minna á að ræðutími í óundirbúnum fyrirspurnum er tvær mínútur í fyrri ræðu og ein mínúta í síðari ræðu.)