aukinn stuðningur við skólakerfið.
Virðulegi forseti. Þegar tekin er ákvörðun um að reka öflugt skólakerfi er grunnhugmyndin sú að jafna rétt barnanna okkar í leik og starfi, að jafna stöðuna til náms og tryggja þannig jöfn tækifæri fyrir börnin okkar inn í framtíðina með sterka grunnmenntun í farteskinu. Skólinn okkar er þannig ákveðið lögheimili jöfnuðar í sterku velferðarsamfélagi. Þannig viljum við líka hafa það. En núna er hætt við komið að þessi grunnstoð skólakerfisins sé í hættu. Nú eru tæpir tveir mánuðir síðan við fengum niðurstöðu PISA. Við vorum öll hér meira og minna á innsoginu, eðlilega. Við óttuðumst þessar niðurstöður. Talað var um þetta í tvær vikur og síðan er þögnin ein eftir. Það var það sem ég óttaðist og ræddi m.a. um í þingsal. Ég lýsti áhyggjum mínum yfir því að við myndum ekki halda áfram með þetta stóra verkefni að tryggja þá grunnstoð sem skólakerfið er.
Mér finnst þetta mál, þetta risamál, það hvernig við byggjum upp skólann, styðjum við kennara, styðjum við börnin okkar, m.a. þau börn sem hafa íslensku sem annað tungumál, komum skilaboðum til foreldra, vera eitt stærsta málið í okkar samfélagi og ég vona að allir við ríkisstjórnarborðið séu einmitt að tala um þetta mál.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað er verið að gera til að styðja betur við kennara, veita þeim stuðning og styrk til að kenna?
Í öðru lagi: Hvaða áform eru um að kenna börnum sem eru með íslensku sem annað tungumál? Ef við tökum þau ekki strax föstum tökum og eflum íslenskukennslu, bæði fyrir börnin og foreldra þeirra, sjáum við fram á að mínu mati mun meiri erfiðleika, hugsanlega stéttaskiptingu, sem við viljum ekki sjá í íslensku samfélagi.
Í lokin langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé ekki örugglega verið að tryggja fjármagn til nýrrar stofnunar skólaþjónustunnar fyrir fjölbreytt, meiri og betri námsgögn til þess að styðja við kennara sem geta síðan tekið enn betur utan um börnin okkar.