viðbrögð á Norðurlöndum við hælisleitendum frá Gaza.
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins fá að tala um tölfræði áfram. Ég vil nefna að árið 2012 fór umsóknarfjöldi þeirra er sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi í fyrsta sinn yfir 100 einstaklinga, eða samtals 118. Árið 2016, er síðustu útlendingalögin voru í vinnslu hér í þinginu, var einnig sett met þegar umsóknarfjöldinn fór í fyrsta sinn yfir 1.000 einstaklinga. Árið 2022 var síðan annað metár en þá fór umsóknarfjöldinn yfir 4.500. Á rúmum áratug hefur því umsóknarfjöldi um alþjóðlega vernd aukist um rúmlega 3.700%. Ef við tökum fjöldaflótta Úkraínu frá þá er þetta aukning upp á 2.000%. Á tveimur árum hafa því tæplega 9.000 manns sótt um vernd og til samanburðar þá búa um 9.000 manns í Árborg. (Forseti hringir.) Ég sagði í fyrra svari mínu áðan að við værum með rýmri reglur í kringum fjölskyldusameiningar en löndin í kringum okkur og ég tel ástæðu til að við tökum það til endurskoðunar.