hagsmunafulltrúi eldra fólks.
Virðulegi forseti. Hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra. Vorið 2021 þegar samið var um þinglok við flokkana á þingi var því mjög fagnað á vettvangi Flokks fólksins og meðal stórra hópa eldra fólks á Íslandi að langþráður draumur sem speglaðar var í þingsályktunartillögu flokksins um stofnun embættis hagsmunafulltrúa eldra fólks yrði loks að veruleika. Þetta var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum þingmanna, bæði stjórnar og stjórnarandstöðu, og skyldi starfshópur skila drögum að frumvarpi um slíkan hagsmunafulltrúa fyrir marslok 2022. Ekki gekk það eftir. Hins vegar tilkynnti ráðherra vorið 2023 að ákveðið hefði verið að fara ekki að umræddri þingsályktun heldur skyldi ráðist í að fella þetta mál undir aðgerðaáætlunina Gott að eldast og vísaði ráðherra í tvær tillögur áætlunarinnar um þjónustu við heilabilað fólk og um hvernig eldra fólk getur aflað sér upplýsinga um réttindi sín og skyldur. Ráðherra sagði aðspurður að ráðnir yrðu tveir einstaklingar til að svara í síma og veita upplýsingar um hvernig nota mætti síðuna Ísland.is. Með fullri virðingu fyrir símsvörum og skrifstofum úti í bæ er enn óskipaður hagsmunafulltrúi eldri borgara og því um að ræða ákvörðun sem gengur í berhögg við það sem einróma var samþykkt af öllum þingmönnum vorið 2021. Ráðherra er handhafi framkvæmdarvalds sem framkvæmir vilja löggjafarvalds. Starfshópur ráðherra hefur ekkert umboð til að víkja frá samþykktum Alþingis. Hér er um að ræða bíræfna tilraun til undankomu frá því sem Alþingi hefur einróma samþykkt.
Nú spyr ég hæstv. ráðherra: Hvenær megum við eiga von á því að þú framkvæmir vilja löggjafans eins og þér ber skylda til og leggir fram frumvarpið um hagsmunafulltrúa eldra fólks?