154. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2024.

hagsmunafulltrúi eldra fólks.

[15:33]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Þetta stenst ekki. Svona geta ráðherrar ekki hagað sér. Þetta er ekki í samræmi við störf á Alþingi Íslendinga. Þegar sammælst er um tiltekið mál skal því fylgt eftir og það er framkvæmdarvaldsins og ráðherrans að framkvæma vilja þingsins, ekki að túlka hann eftir sínu höfði og fela einhverjum hópum úti í bæ að endurskoða það sem þegar hefur verið samþykkt á þinginu. Ég vona að þetta sé ekki eitthvert vaxandi einkenni á störfum ráðherra tiltekinna flokka hér á þingi, að fara frjálslega með lögin sem hér gilda og eru samþykkt. Ég spyr því enn og aftur: Hvenær hyggst ráðherrann leggja fram það sem hefur verið samþykkt á Alþingi, lög um hagsmunafulltrúa eldra fólks á Íslandi? Ég óska eftir skýrum svörum.