bólusetning gegn mislingum.
Virðulegur forseti. Sóttvarnalæknir fékk tilkynningu fyrir nokkrum dögum frá Landspítala um fullorðinn einstakling sem greindist með mislinga. Mislingar eru bráðsmitandi veirusjúkdómur og við sem samfélag höfum búið svo vel að okkur hefur kannski á nokkrum áratugum tekist að gleyma því hversu hættulegur sjúkdómur þetta getur verið þó svo að sem betur fer sleppi flestir vel frá honum. Í umfjöllun um þetta mál núna hefur jafnframt komið fram að samkvæmt nýjustu samantekt landlæknis er þátttaka landsmanna í mislingabólusetningu nú komin niður fyrir 90%, sem er of lágt hlutfall til að viðhalda hjarðónæmi. Mig langar því að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort og þá til hvaða ráðstafana hafi verið tekið eða sé hægt að taka til þess að tryggja með sem bestum hætti að fólk nýti sér bólusetningar til þess að við getum haldið áfram að viðhalda þeim mikilvæga árangri sem hefur náðst hvað varðar heilsufar þjóðarinnar með því að koma í veg fyrir mislingafaraldra. Við þekkjum í gegnum Íslandssöguna að þeir blossuðu hér alltaf reglulega upp og úti um allan heim og urðu allt of mörgum mjög skeinuhættir og gátu leitt til alvarlegra veikinda.