154. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2024.

orð ráðherra um frumvarp um hagsmunafulltrúa eldra fólks.

[15:53]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég átta mig ekki alveg á því hvert hæstv. ráðherra er að fara með þessum ummælum sínum sem hann lét falla í óundirbúnum fyrirspurnum. Það er nú svo að Alþingi Íslendinga hefur samþykkt að ríkisstjórnin eigi að sinna ákveðnum verkum og það að ráðherra komi hérna og kvarti undan því þegar þingmenn eru að ýta eftir því að þau verk komist til framkvæmda og kalli þá hvatningu popúlíska finnst mér með ólíkindum. Ég átta mig ekki á því hvernig hæstv. ráðherra fær það út að slíkur málflutningur sé popúlískur. Ýmislegt annað getum við kallað popúlískt og haft mismunandi skoðanir á því en það er frekar augljóst að þetta er einfaldlega rangt hjá ráðherra. Ef eitthvað er þá er dæminu snúið dálítið við þarna þar sem ráðherra er í rauninni ásaka þingmenn Flokks fólksins um eitthvað (Forseti hringir.) sem er ekki hægt að staðhæfa, ekki hægt að segja að sé bara satt. (Forseti hringir.) Ég get ekki orða bundist yfir þessu, virðulegi forseti, (Forseti hringir.) af því að mér finnst að forseti hefði átt að sjá þetta strax.