orð ráðherra um frumvarp um hagsmunafulltrúa eldra fólks.
Herra forseti. Ég skora á forseta hreinlega að fylgja því eftir að framkvæmdarvaldið fari að vilja löggjafans. Ég veit ekki hvaða vírus er að ganga hjá Vinstrihreyfingunni – grænu framboði ef það þykir bara eðlilegt og sjálfsagt að fara á svig við gildandi rétt og vilja löggjafans. Ég bara skil það ekki. Í þessu tilviki hefur hæstv. ráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson haft tæp þrjú ár til að koma sér með þetta frumvarp hér inn í þingið sem löggjafinn samþykkti einróma í júní 2021, fyrir tæpum þremur árum. Það er ekkert sem réttlætir þessi vinnubrögð og það er ekkert sem segir mér að slíkur starfshópur og slíkur ráðherra ætti að halda áfram að starfa ef tæp þrjú ár nægja honum ekki til að koma með fullmótað og almennilegt frumvarp hér fyrir þingið, eins og var augljós og samróma, einróma vilji Alþingis. Við erum löggjafinn. Framkvæmdarvaldsins er að framfylgja okkar vilja, ekki að taka sjálfstæðar ákvarðanir og valta yfir vilja löggjafans (Forseti hringir.) á skítugum skónum með vanvirðingu og kalla það popúlisma.