orð ráðherra um frumvarp um hagsmunafulltrúa eldra fólks.
Virðulegur forseti. Starfshópurinn sem fjallar um þingsályktunartillögu um hagsmunafulltrúa Alþingis (IngS: Eldra fólks.) — eldra fólks átti að meta hvar slíku embætti yrði best fyrir komið og hvert umfang embættisins ætti að vera og ráðherrann átti að skila drögum fyrir 1. apríl árið 2022. Það var vilji Alþingis. Ráðherra sem situr í skjóli meiri hluta þings í þingræðisríki á að fara að vilja Alþingis og ekkert annað. Alþingi var ekki að spyrja hann hvort það væri skynsamlegt eða óskynsamlegt að vera með svona frumvarp. Þetta frumvarp kæmi til meðferðar á Alþingi og við myndum sjá um að gera breytingar á því ef til þess kæmi. Það var enginn að spyrja hæstv. ráðherra hvort það ætti að leggja þetta frumvarp fram, honum var skipað að gera það.
Virðulegur forseti. Ég tel að hér sé um þvílíka vanvirðingu við Alþingi Íslendinga að ræða að ég skora á forseta að taka þetta mál upp og krefja hæstv. ráðherra um þetta frumvarp. Þannig virkar þingræðið. Það snýst um (Forseti hringir.) að fara að vilja okkar. Við búum í þingræðisríki og það er þingræði en ekki ráðherraræði í þessu landi (Forseti hringir.) og það er gott að ráðherra muni hver veitir honum vinnuna, hver vinnuveitandinn er.