orð ráðherra um frumvarp um hagsmunafulltrúa eldra fólks.
Forseti. Það hefur verið talað um pólitískan ómöguleika þessu tengt, þ.e. að þegar ríkisstjórnin er einhvern veginn ekki sammála því sem Alþingi samþykkir eða hefur samþykkt þá sé bara pólitískt ómögulegt fyrir ríkisstjórn að framkvæma vilja Alþingis. Mjög áhugavert og endurspeglast vel í bæði þessu máli og máli sem ég og þáverandi hv. þm. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir lögðum fram um stafrænar smiðjur fyrir nokkrum árum síðan. Þá kvittaði forsætisráðherra undir fullgildingu þeirrar þingsályktunartillögu, bara lokið, með því að skrifa aftur undir samninga um stafrænar smiðjur sem átti að vera efling stafrænna smiðja, sem gerðist ekki. Það er orðið dálítið einkennismerki þessarar ríkisstjórnar bara að hunsa í rauninni vilja þingsins, af því að það er nú ríkisstjórnin sem ræður hérna samkvæmt því. Framkvæmdarvaldið er orðið algjört og Alþingi er komið í annað sæti og það er svo augljóst einmitt á því hvernig ráðherra úr ríkisstjórninni hefur farið með ályktanir þingsins, til að mynda þessa sem við ræðum hérna.